Árbók Reykjavíkurborgar - 01.12.1996, Page 123
Árbók Reykjavíkur 1996
Samgöngur
ÞJÓÐVEGIR.
í III. kafla laga nr. 45/1994, Vegalög, kemur fram skilgreining á hugtakinu þjóðvegir. Hér á
eftir birtist hann orðréttur.
m. kafli.
Þjóðvegir.
1) Ákvæði III. kafla öðlast gildi við fyrstu reglulegu endurskoðun vegáætlunar eftir setningu
laganna, sbr. 61. gr. Fram að því gilda ákvæði V. kafla eldri laga, nr. 6/1977.
7. gr.
Þjóðvegir eru þeir vegir sem ætlaðir eru almenningi til frjálsrar umferðar, haldið er
við af fé ríkisins og upp em taldir í vegáætlun, safnvegaáætlun og landsvegaskrá.
8. gr.
Þjóðvegir skulu mynda eðlilegt, samfellt vegakerfi til tengingar byggða landsins.
Vegakerfi þetta skal tengja öll býli á landinu, alla þéttbýlisstaði, flugvelli þar sem starfrækt er
reglubundið áætlunarflug, hafnir og bryggjur ef þaðan em stundaðar áætlunarsiglingar og
aðra staði eins og nánar er lýst hér á eftir.
Þjóðvegum skal skipað í flokka eftir eftirfarandi reglum:
Stofnvegir:
Vegir sem ná til 1.000 íbúa svæðis og tengja slík svæði saman. Víkja má frá reglunni
um íbúafjölda ef um er að ræða tengingu kaupstaða eða kauptúna sem mynda samræmda
heild frá atvinnulegu eða félagslegu sjónarmiði. Sama gildir um vegi sem hafa mikla
árstíðabundna umferð eða þar sem innan 10 ára má búast við 1.000 bfla umferð á dag yfir
sumarmánuðina. Við það stofnvegakerfi sem þannig fæst skal tengja með stofnvegi þéttbýli
400 íbúa eða fleiri enda sé tengingin ekki lengri en 20 km. svo og þéttbýli með 200-400 íbúa
ef tenging er ekki lengri en sem svarar 5 km. fyrir hverja 100 íbúa í þéttbýlinu. Þar sem
stofnvegur endar í þéttbýli skal hann ná til þess svæðis sem mikilvægast er fyrir athafnalíf
þéttbýlisins.
Tengivegir:
Vegir sem tengja safnvegi við stofnvegi og ná að þriðja býli frá vegarenda þar sem
búseta er. Þetta ákvæði gildir þó ekki ef um er að ræða veg í kaupstað eða kauptúni. Einnig
má telja tengiveg að innsta býli þar sem landsvegur liggur úr byggð.
Þar sem tengivegur tengir þéttbýli við stofnvegakerfið skal hann ná til þess svæðis
sem mikilvægast er fyrir athafnalíf þéttbýlisins.
Vegir að flugvöllum þar sem starfrækt er reglubundið áætlunarflug og vegir að
höfnum og bryggjum, ef þaðan eru stundaðar áætlunarsiglingar, skulu einnig vera tengivegir
ef þeir eru ekki stofnvegir samkvæmt skilgreiningu um þann vegflokk.
Safnvegir:
Safnvegir tengja einstök býli, stofnanir o.fl. við tengivegi eða stofnvegi.
Til safnvega teljast:
Vegir að öllum býlum sem búseta er á og ekki eru tengd með stofnvegi eða
tengivegi. Vegur samkvæmt þessum lið skal þó aldrei teljast ná nær býli en 50 m. ef hann
endar þar eða vera inni í þéttri byggð ef vegakerfí þar er styttra en sem svara 50 m. fyrir
hvert býli eða íbúð.
107