Árbók Reykjavíkurborgar - 01.12.1996, Page 189
Árbók Reykjavíkur 1996
Gjaldskrármál
Húsatryggingar Revkjavíkurhorgar. Skylt var að hafa öll þau hús í
lögsagnarumdæminu brunatryggð hjá þeim aðila, sem tryggingarnar annaðist,
samkvæmt ákvörðun borgarstjórnar, og með vátryggingarverði er dómkvaddir
menn meta. Einkaréttur fyrirtækisins var afhuminn með lögum nr. 48/1994 frá og
með 1. janúar 1995, en frá þeim tíma hefur húseigendum verið frjálst að velja sér
vátryggingarfélag, en brunatrygging er áfram lögbundin.
Gatnagerðargjöld. Samkvæmt gjaldskrá um þátttöku lóðarleigjenda í kostnaði við
gatnagerð krefur borgarstjórn leigutaka um gjald til þátttöku í kostnaði við
byrjunarframkvæmdir gatnagerðar, þegar hún selur á leigu byggingarlóðir. Gjaldið
skal greiða eftir nánari fyrirmælum borgarstjóra, strax og borgarráð hefur gefið
fyrirheit um lóðina. Leigutakar fá ekki leyfi til að hefja byggingarframkvæmdir,
fyrr en þeir hafa greitt eða gert fullnægjandi samning um greiðslu gjaldsins.
Sundstaðir Revkjavíkurborgar. Gjaldskráin var um langt skeið miðuð við það,
að tekjur samkvæmt henni stæðu undir 60% reksturskostnaðar, en frá 1984 hefur
verið reiknað með því, að tekjur sundstaðanna standi undir 80% rekstrarkostnaðar,
að frádregnum kostnaði af endurbótum umfram venjulegt viðhald.
Húsaleiga sú, sem greidd er fyrir íbúðarhúsnæði í eigu Reykjavíkurborgar, hefur
ávallt verið vel innan þeirra marka, sem leyfileg eru, en hún er ákveðin af borgarráði
(borgarstjórn) að fengnum tillögum félagsmálaráðs.
Heimilishjálp og heimilisþjónusta. Gjaldskráin er sett með heimild í 29. gr. V.
kafla laga nr. 82/1989 um málefni aldraðra. Samkvæmt gjaldskránni skal greitt
tiltekið gjald fyrir hverja vinnusmnd. Félagsmálaráði er heimilt að gefa eftir hluta
af greiðslu fyrir veitta heimilishjálp, eða fella greiðslu alveg niður, þegar slæmur
efnahagur eða aðrar sérstakar ástæður eru fyrir hendi.
Tveikskólar Revkjavíkurborgar. Stjóm Dagvistar barna sér um daglegan rekstur
dagvista og gerir tillögur um gjaldskrár, sem lagðar em fyrir borgarráð.
173