Árbók Reykjavíkurborgar - 01.12.1996, Síða 197
Árbók Reykjavíkur 1996
Gjaldskrármál
skal ekki greiða gatnagerðargjald, enda nemi stækkunin ekki meiru en 1/3 hluta af
rúmmáli íbúðarinnar og aldrei meiru en 100 m3 á hverja íbúð. Tilheyri stækkunin
sameign íjöleignarhúss, skal meta hana eins og ef um stækkun vegna einnar íbúðar væri
að ræða. Við ákvörðun gatnagerðargjalds skv. þessum tölulið skal meta í einu lagi þær
stækkanir, sem samþykktar hafa verið á sama húsi á næstu 5 árum á undan.
Samþykki byggingamefhd breytingar á húsnæði eða notkun húsnæðis, sem undanþágur samkv.
1., 2. eða 3. tl. 3. mgr. þessarar greinar taka til, þannig að það uppfyllir ekki lengur skilyrði
til lækkunar gatnagerðargjalda, skal greiða gatnagerðargjald af því húsnæði samkvæmt gildandi
gjaldskrá, að teknu tilliti til þess sem áður hefur verið greitt vegna sama húsnæðis. Ef veitt
er undanþága frá greiðslu gatnagerðargjalds samkv. 1., 2. eða 3. tl. 3. mgr skal þinglýsa
yfirlýsingu á viðkomandi eign um að breytt notkun húsnæðisins geti leitt til greiðslu
gatnagerðargjalda.
3. gr.
Ef lóðarhafi rífur gamalt hús eða flytur af lóð og byggir stærra hús á sömu lóð skal gjald
skv. 2. gr. vera rúmmetragjald nýja hússins að frádregnum rúmmetrum þess húss, sem
ijarlægt er. Sama gildir ef hús brennur og byggt er að nýju á sömu lóð.
4. gr.
Gjald skal áætla, þegar lóðarúthlutun fer fram. Gjald þetta skal vera lágmarksgjald og
miðast við nýtingarmöguleika samkvæmt því skipulagi, sem gildir við lóðarúthlutun, og
endurgreiðist ekki, þótt minna sé byggt á lóð. Sama á við þótt nýtingarmöguleikar á lóð
minnki eftir að lóð er úthlutað, eða gert sé ráð fyrir breyttri húsagerð, enda sé skipulagi
breytt að ósk lóðarhafa. Innan mánaðar frá úthlutun skal greiða ákveðinn hluta
gatnagerðargjalds, skv. ákvörðun borgarráðs, ella fellur úthlutun sjálfkrafa úr gildi. Borgarráð
ákveður gjalddaga og greiðsluskilmála á eftirstöðvum. Gatnagerðargjald af rúmmáli, sem
er umfram það sem lágmarksgatnagerðargjald er miðað við skv. framansögðu, fellur í
gjalddaga, þegar byggingamefndarteikning er samþykkt og skal greiða það eigi síðar en
innan mánaðar. Verði breytingar á byggingarkostnaði vísitöluhússins á þeim tíma, sem
líður frá lóðarúthlutun og til þess dags, sem teikning er samþykkt, skal
umframgatnagerðargjald greiðast skv. því rúmmetragjaldi, sem gildir þá. Hafi skipulagi
lóðar verið breytt samkvæmt framansögðu áður en byggingarnefndarteikning er samþykkt,
skal umframgatnagerðargjald greiðast samkvæmt því rúmmetragjaldi, sem við á samkvæmt
hinu nýja skipulagi. Þegar byggt er á eignarlóð, áður úthlutaðri lóð eða eldra hús er stækkað,
skal greiða allt gjaldið við útgáfu byggingarleyfis.
5. gr
Hafi byggingarleyfi fallið úr gildi eða verið fellt úr gildi skal við endurnýjun leyfisins greiða
skv. þágildandi gjaldskrá af þeim hluta byggingarinnar, sem byggingarleyfi er endurnýjað
fýrir, að frádregnu því gatnagerðargjaldi, sem áður hefur verið greitt af sama áfanga.
6. gr.
Nú er lóð endurúthlutað og skal þá greiða gatnagerðargjald á grundvelli þeirrar gjaldskrá,
sem í gildi er, þegar úthlutunin fer fram. Nú hefur gjaldskrá hækkað frá frumúthlutun og er
181