Árbók Reykjavíkurborgar - 01.12.1996, Page 266
ÁrbókReykjavíkur 1996
Félagsmál
LÖG UM GATNAGERÐARGJALD.
Nr. 17, frá 21. mars 1996.
1. gr.
Sveitarstjórn er heimilt að innheimta gatnagerðargjald af öllum lóðum í sveitarfélaginu og/eða
mannvirkjum á þeim. Gatnagerðargjald er fyrst gjaldkræft við úthlutun lóðar, sem er í eigu
sveitarfélagsins eða sveitarfélagið hefur ráðstöfunarrétt á, og við útgáfu byggingarleyfis á öðrum lóðum.
Sveitarstjórn ákveður í gjaldskrá sinni hvenær gjaldið er innheimt.
Nú er lóðarúthlutun afturkölluð, lóð skilað, byggingarleyfi afturkallað eða ekki nýtt af
lóðarhafa og ber sveitarfélagi að endurgreiða gatnagerðargjald af viðkomandi lóð.
2. gr.
Gatnagerðargjaldi skv. 1. gr. skal varið til gatnagerðar í sveitarfélaginu, svo sem til að
undirbyggja götur með tilheyrandi lögnum, m.a. vegna götulýsingar, og leggja bundið slitlag,
gangstéttir, umferðareyjar og þess háttar þar sem gert er ráð fyrir því í skipulagi.
3. gr.
Við ákvörðun gatnagerðargjalds skal miða við lóðarstærð, rúmmál húss og/eða flatarmál húss
samkvæmt nánari ákvæðum í reglugerð sem félagsmálaráðherra setur. Gjaldið má vera mismunandi
eftir notkun lóðar, t.d. eftir því hvort um er að ræða lóð fyrir íbúðarhúsnæði, verslunarhúsnæði,
iðnaðarhúsnæði o.s.frv. Þá má gjald af lóð fyrir íbúðarhúsnæði vera mismunandi eftir því hvort um er
að ræða lóð fyrir einbýlishús, raðhús, fjölbýlishús o.s.ffv.
Heimilt er að innheimta gatnagerðargjald ef reist er nýtt hús á áður byggðri lóð að því er
stækkuninni nemur. Sama gildir ef eldra hús er stækkað.
Gatnagerðargjald, sem miðað er við stærð byggingar, getur af hveijum rúmmetra eða fermetra
numið allt að 15%; af heildarbyggingarkostnaði samsvarandi einingar í vísitöluhúsi fjölbýlis eins og
hann er hveiju sinni samkvæmt útreikningum Hagstofu íslands á grundvelli laga nr. 42/1987. Fjárhæð
gjaldsins má ákveða með tilliti til leyfilegrar stærðar byggingar samkvæmt því skipulagi sem gildir fyrir
viðkomandi lóð. Gatnagerðargjald, sem miðað er við stærð lóðar, skal ekki vera hærra en ef það væri
miðað við stærð byggingar samkvæmt gildandi aðal- eða deiliskipulagi.
4. gr.
Lóðarhafi berábyrgð ágreiðslu gatnagerðargjalds. Gatnagerðargjald samkvæmt lögum þessum
er, ásamt áfóllnum vöxtum og kostnaði, tryggt með lögveðsrétti í viðkomandi fasteign með forgangsrétti
fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.
5. gr.
Aðili máls getur skotið ákvörðun sveitarstjómar um álagningu gatnagerðargjalds til úrskurðar
félagsmálaráðherra. Kæruffestur er þrír mánuðir ffá því að aðili fékk vitneskju um álagningu gjaldsins.
Kæruheimild þessi skerðir þó eigi rétt aðila til að höfða mál fyrir dómstólum.
6. gr.
Félagsmálaráðherra skal setja reglugerð um nánari ffamkvæmd laga þessara og skal í
reglugerðinni m.a. kveðið nánar á um álagningu gatnagerðargjalds og endurgreiðslu þess skv. 1. gr.
Sveitarstjórn skal setja sér sérstaka gjaldskrá fyrir gatnagerðargjald þar sem kveðið er nánar á
um álagningu gjaldsins, innheimtu þess og hvað er innifalið í gjaldinu samkvæmt lögum þessum og
reglugerð um gatnagerðargjald. Sveitarstjórn skal auglýsa gjaldskrána og efnislegar breytingar á henni á
þann hátt sem venja er að birta opinberar auglýsingar í sveitarfélaginu.
250