Árbók Reykjavíkurborgar - 01.12.1996, Page 272
Árbók Reykjavíkur 1996
Félagsmál
starfsmönnum lausn frá þeim tíma sem beiðst er ef svo margir leita lausnar samtímis eða um líkt leyti í
sömu starfsgrein að til auðnar um starfrækslu þar mundi horfa ef beiðni hvers um sig væri veitt. Getur
sveitarstjórn þá áskilið lengri uppsagnarífest, allt að sex mánuðum.
Akvæði ráðningarsamnings, sem gerður hefur verið fyrir gildistöku laga þessara, eða
sérákvæði í lögum, er öðruvísi kveða á, skulu standa.
IV. kafli. Um oriof.
16. gr.
Um orlof starfsmanna skal fara eftir ákvæðum kjarasamninga og laga um orlof.
17. gr.
Skylt er starfsmanni að taka orlof ef yfirmaður hans skipar svo.
Haldast skulu sérreglur í lögum og ráðningarsamningum um orlof tiltekinna starfsmanna, sbr.
15. gr. Þó sé það aldrei skemmra en lágmark það sem ákveðið er í orlofslögum og kjarasamningum.
V. kafli. Um launagreiðslur og hlunnindi.
18. gr.
Starfsmenn taka laun samkvæmt kjarasamningum og ráðningarsamningum, sbr. 24. gr. laga um
kjarasamninga opinberra starfsmanna.
Starfsmönnum er skylt að hlíta breytingum á launakjörum sínum samkvæmt lögum eða
samþykktum, staðfestum af hlutaðeigandi sveitarstjórn, þar sem heimild er til slíks að lögum, enda
standi ráðningarsamningur því eigi í gegn.
19. gr.
Þegar laun fara stighækkandi eftir starfsaldri skal svo fara sem hér segir:
Nú fær starfsmaður launahærri stöðu en hann hafði áður og tekur hann þá lægstu laun í hinni
nýju stöðu ef þau eru hærri en hæstu laun í hinni fyrri. En ef byrjunarlaun í nýju stöðunni eru jöfh eða
lægri en þau er hann hafði þá í hinni fyrri tekur hann næstu laun fyrir ofan þau er hann hafði þar.
Starfsaldur til launahækkunar í nýju stöðunni telst frá því er hann fékk skipun eða setningu í hana.
Nú tekur starfsmaður við sams konar stöðu og hann hafði áður og telst starfsaldur hans þá ffá
skipun eða ráðningu í hina eldri stöðuna.
Nú tekur starfsmaður verr launaða stöðu í sömu starfsgrein en hann hafði áður og fær hann þá
laun í nýju stöðunni sem næst eru þeim launum eða hærri en þau laun er hann hafði í fyrri stöðunni. Ef
hann tekur stöðu í annarri starfsgrein fær hann hæstu laun þar ef þau eru lægri eða jafnhá þeim er hann
hafði. En ef þau eru hærri tekur hann þau er hann hafði í eldri stöðunni.
Nú tekur starfsmaður við stöðu aftur sem hann hafði farið úr og er þá rétt að telja saman allan
starfstímann.
20. gr.
Föst laun greiðast fyrir fram mánaðarlega fyrsta starfsdag hvers mánaðar. Greidd laun eru
óafturkræf þótt starfsmaður andist eða verði leystur ffá starfa áður en mánuður er liðinn.
Nú tekur maður við starfa eftir fyrsta dag mánaðar og fær hann þá laun í réttu hlutfalli við tölu
þeirra daga sem eftir eru af þeim mánuði.
21. gr.
Nú er starfsmaður leystur frá starfa vegna vanheilsu eða slysa, sem honum verður ekki með
skynsamlegu mati gefin sök á, og ber þá að greiða honum þau föstu laun er stöðu hans fylgja í þijá
mánuði.
256