Árbók Reykjavíkurborgar - 01.12.1996, Page 273
Árbók Reykjavíkur 1996
Félagsmál
Nú tekur maður sem látið hefur af starfi vegna vanheilsu aftur við starfi í starfsgrein og skal þá
starfsaldur hans áður og eftir lagður saman og veitir þá sama rétt og óslitin þjónusta.
Um greiðslu til maka látins starfsmanns fer eftir ákvæðum 1. mgr.
22. gr.
Þegar einhver hluti launa er greiddur í fríðu, svo sem jarðarafnotum, húsnæði, ljósi, hita, fæði
og öðru, skulu þessi hlunnindi metin árlega af ríkisskattstjóra og matsverðið dregið ffá
heildarlaununum.
23. gr.
Starfsmanni er óheimilt að gefa út ávísanir á laun sem ekki eru í gjalddaga komin, nema
sveitarstjórn veiti til þess samþykki sitt hverju sinni. Sú heimild má þó ekki fara fram úr íjórðungi
árslauna. Enginn vinnur rétt samkvæmt slíkri ávísun, nema samþykki sé fengið.
24. gr.
Nú þykir hlýða að dómi sveitarstjórnar að starfsmaður beri einkennisbúning eða
einkennismerki önnur í starfi sínu og ber sveitarsjóði að leggja hann eða þau merki til starfsmanni að
kostnaðarlausu eftir þeim reglum sem sveitarstjórn setur.
25. gr.
Starfsmenn, er veita heimili forstöðu, eiga rétt til þess að vinna tvo þriðju hluta ákveðins
vinnutíma gegn samsvarandi frádrætti í launum, enda megi slíkt verða að skaðlausu.
Samsvarandi ívilnun má og öðrum veita er sérstaklega er farið, svo sem vegna heilsuveilu.
26. gr
.Nú gegnir starfsmaður samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar jafnhliða sínum starfa öðrum starfa
og fær hann þá hálf þau föstu byrjunarlaun er þeim starfa fylgja og aukatekjur allar. Ef slíkum starfa er
skipt milli tveggja eða fleiri starfsmanna kveður sveitarstjóm á um þóknun hvers þeirra með hliðsjón af
vinnu og aðstöðu að öðru leyti.
27. gr.
Sveitarstjórn ákveður í samþykktum sínum daglegan vinnutíma starfsmanna, svo og þóknun
fyrir verk sem unnin eru utan þess tíma.
VI. kafli. Skyldur starfsmanna.
28. gr.
Starfsmanni er skylt að rækja starf sitt með alúð og samviskusemi í hvívetna. Hann skal gæta
kurteisi, lipurðar og réttsýni í starfi sínu. Hann skal forðast að hafast nokkuð það að í starfi sínu eða
utan þess sem er honum til vanvirðu eða álitshnekkis eða varpað getur rýrð á það starf eða starfsgrein
sem hann vinnur við.
29. gr.
Skylt er starfsmanni að hlýða löglegum fyrirskipunum yfirmanna um starf sitt.
Þrátt fyrir ákvæði laga um kjarasamninga opinberra starfsmanna er skólastjórum og
staðgenglum þeirra óheimilt að gera verkfall. Fyrir 1. febrúar ár hvert skal sveitarstjórn birta lista yfir þá
sem falla undir málsgrein þessa.
257