Árbók Reykjavíkurborgar - 01.12.1996, Page 276
Árbók Reykjavíkur 1996
Félagsmál
Nr. 77 .. 5. júní 1996
LOG
um breyting á lögum nr. 66/1995, um grunnskóla.
Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staöfest þau með samþykki mínu:
l.gr.
Við 10. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur frumkvæði að lausn málefna grunnskólans sem
varða fleiri en eitt sveitarfélag, ef þeim er ekki skipað með öðrum hætti í lögum, reglugerð-
um eða með samkomulagi aöila.
2. gr.
Við 11. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Sveitarfélag getur falið byggðasamlagi um rekstur grunnskóla þau réttindi og skyldur
sem á sveitarfélagi hvíla samkvæmt lögum þéssum.
3. gr.
Við 21. gr. laganna bætast fjórar nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Eignarhlut ríkisins í skólahúsnæði skal afskrifa í 15 jöfnum áföngum og hann þannig yf-
irfærður til þeirra sveitarfélaga sem annast og kosta viðhald húsnæðisins. Skal það gert með
því að lækka í lok hvers árs eignarhlut ríkisins, eins og hann er skráður hjá Fasteignamati
ríkisins 1. ágúst 1996, um 6M %, í fyrsta skipti 31. desember 1996. Jafnframt hækki eignar-
hlutur sveitarfélaga samsvarandi.
Verði breyting á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga þannig að skólahúsnæði er ráðstaf-
að til rekstrar á vegum ríkisins skal samsvarandi yfirfærsla á eignarhlut sveitarfélags eiga
sér staö á 15 árum frá sveitarfélagi til ríkis.
Akvæði þessarar greinar eiga þó ekki við um húsnæði og aðstöðu sem framhaldsskólar
hafa afnot af, svo sem íþróttahús og önnur íþróttamannvirki. Enn fremur eru undanskildir
skólastjóra- og kennarabústaðir, óbyggðar lóðir og landréttindi.
Menntamálaráðherra setur nánari ákvæði um framkvæmd þessarar greinar í reglugerð
að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga.
4. gr.
1. mgr. 26. gr. laganna orðast svo:
Starfstími grunnskóla skal á hverju skólaári vera níu mánuðir. Kennsludagar skulu ekki
vera færri en 170.
5. gr.
Ákvæöi til bráðabirgða í lðgunum orðast svo:
Ákvæöi 3. gr. um einsetinn grunnskóla skal komið að fullu til framkvæmda að átta árum
liðnum frá gildistöku laga þessara.
Ákvæði 2. mgr. 27. gr. um vikulegan kennslutíma á hvem nemanda skal koma til fram-
kvæmda á árabilinu 1995-2001 sem hér segir:
Haustið 1995 fjölgar kennslustundum um sex, þannig að vikulegur kennslustundafjöldi
nemenda verður að lágmarki sem hér segir:
1 .-4. bekkur: 26 kennslustundir,
5.-7. bekkur: 29, 31 og 33 kennslustundir,
8.-10. bekkur: 34 kennslustundir.
Haustið 1996 fjölgi kennslustundum um 10, þannig:
1 .-4. bckkur: 27 kennslustundir,
5.-7. bekkur: 30, 32 og 34 kennslustundir,
8.-10. bekkur: 35 kennslustundir.
260