Árbók Reykjavíkurborgar - 01.12.1996, Page 278
Árbók Reykjavíkur 1996
Félagsmál
LÖG UM FRAMHALDSKÓLA.
Nr. 80, frá 11. júní 1996.
I. kafli. Gildissvið.
1. gr.
Lög þessi taka til skólastarfs á framhaldsskólastigi er tekur við af skyldunámsstigi og allt til
háskólastigs, sbr. 2. gr. laga nr. 55/1974, um skólakerfi. Framhaldsskólar er samnefni þeirra skóla er
undir lög þessi falla. Þeir eru: íjölbrautaskólar, iðn- og verkmenntaskólar og menntaskólar, svo og
skólar sem veita sérhæft nám á framhaldsskólastigi. Einstakar skólastofnanir geta borið sérstakt nafn,
t.d. tengt stað, hefð eða sérstöku hlutverki. Setja skal reglugerð um sérskóla sem starfa samkvæmt
lögum þessum.
IL kafli. Hlutverk.
2. gr.
Hlutverk ffamhaldsskóla er að stuðla að alhliða þroska allra nemenda svo að þeir verði sem
best búnir undir að taka virkan þátt í lýðræðisþjóðfélagi. Framhaldsskólinn býr nemendur undir störf í
atvinnulífinu og frekara nám.
Framhaldsskólinn skal leitast við að efla ábyrgðarkennd, víðsýni, fmmkvæði, sjálfstraust og
umburðarlyndi nemenda, þjálfa þá í öguðum og sjálfstæðum vinnubrögðum og gagniýninni hugsun,
kenna þeim að njóta menningarlegra verðmæta og hvetja til stöðugrar þekkingarleitar.
IH. kafli. Starfstími.
3. gr.
Arlegur starfstími nemenda f framhaldsskólum skal eigi vera skemmri en níu mánuðir. Þar af
skulu kennsludagar ekki vera færri en 145. Menntamálaráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um
starfstíma skóla og leyfisdaga.
IV. kafli. Stjórnun.
4. gr.
Menntamálaráðherra fer með yfirstjórn þeirra mála er lög þessi taka til og ber ábyrgð á
aðalnámskrá, eftirliti með skólastarfi og námsefni, ráðgjöf um kennslu og þróunarstarf
íframhaldsskólum og söfnun og dreifingu upplýsinga um skólastarf. Menntamálaráðherra setur
reglugerð um framkvæmd einstakra þátta sem hér eru nefndir.
Menntamálaráðherra gerir tillögur um fjárveitingu á fjárlögum til hvers skóla og annast
fjárhagslegt eftirlit, svo og efitirlit með því að ffamhaldsskólar hafi fullnægjandi aðstöðu hvað varðar
húsnæði og búnað.
5.gr.
Samstarfsnefnd framhaldsskóla, skipuð skólameisturum og rektorum undir forsæti
menntamálaráðherra eða staðgengils hans, fjallar um sameiginleg málefni framhaldsskóla og samræmir
störf þeirra.
6. gr.
Menntamálaráðherra skipar skólanefnd við ffamhaldsskóla til fjögurra ára í senn. Ráðherra
getur heimilað sveitarstjórn/sveitarstjómum að tveir eða fleiri skólar sameinist um eina skólanefnd.
262