Árbók Reykjavíkurborgar - 01.12.1996, Síða 284
Árbók Reykjavíkur 1996
Félagsmál
Samtök atvinnurekenda og launþega greiða kostnað af störfum fulltrúa sinna í starfsgreinaráði
og menntamálaráðuneytið greiðir kostnað af störfum fulltrúa menntamálaráðherra og af sérfræðilegri
vinnu við námskrárgerð.
29. gr.
Starfsgreinaráð skilgreinir þarfir starfsgreina fyrir kunnáttu og hæfni starfsmanna og setur fram
markmið starfsnáms.
Starfsgreinaráð gerir tillögur um uppbyggingu starfsnáms og námskrá í sérgreinum viðkomandi
starfsnáms, svo og um tilhögun námsmats, þar með talin sveinspróf og eftirlit með gæðum kennslu og
námsefnis. Það gerir einnig tillögur að skiptingu náms í skóla og á vinnustað, svo og reglum um
vinnustaðanám, viðurkenningu á vinnustöðum til að taka nema í starfsþjálfun eða á námssamning og
aðstöðu, búnað og kennarakost skóla sem annast starfsnám.
Starfsgreinaráð skal hafa frumkvæði að tillögugerð um breytta skipan náms og vera
stjórnvöldum til ráðuneytis í málum er varða menntun í starfsgreinum er undir ráðið heyra.
Að fengnum tillögum starfsgreinaráðs gefur menntamálaráðherra út námskrá í sérgreinum
starfsnáms sem hluta af aðalnámskrá framhaldsskóla og reglur um framkvæmd starfsnáms í einstökum
starfsgreinum.
30. gr.
Til að stuðla að sem bestu samstarfi skóla og atvinnulífs og ýta undir frumkvæði þeirra við
þróun starfsnáms er skólanefnd heimilt að setja á fót eina eða fleiri ráðgjafarnefndir við skóla með
fulltrúum atvinnulffs í viðkomandi byggðarlagi og skal gætt jafnræðis milli fulltrúa atvinnurekenda og
launþega. Skólar leiti til starfsgreinaráða um tilnefningar fulltrúa í ráðgjafamefndir í byggðarlagi.
31. gr.
Menntamálaráðherra getur, að fenginni umsögn starfsgreinaráðs og stofnaðila, gert
framhaldsskóla eða deild í framhaldsskóla að kjamaskóla um lengri eða skemmri tíma. í samráði við
starfsgreinaráð hefur kjarnaskóli forgöngu um að þróa námsefni, námsskipan og kennsluaðferðir í
starfsnámi og aðstoðar aðra skóla og fyrirtæki við umbætur í kennslu og þjálfun á viðkomandi sviði.
I samningi, er menntamálaráðherra gerir við þá stofnun er tekur að sér hlutverk kjarnaskóla,
skal verkefnið skilgreint, stjórnun þess, lengd samningstíma og hvernig úttekt þess skuli háttað.
Hagsmunaaðilar á vinnumarkaði geta átt aðild að slíkum samningi.
32. gr.
Verknám og starfsþjálfun á vinnustað byggist á ákvæðum aðalnámskrár og reglum um
vinnustaðanám í viðkomandi starfsgrein. Um vinnustaðanám skal gera sérstakan starfsþjálfunarsamning
milli skóla og vinnustaðar eða námssamning milli nema og vinnuveitanda.
Námssamningur skal undirritaður við upphaf vinnustaðanáms og staðfestur innan eins
mánaðar. Þar skal tilgreindur reynslu- og gildistími samningsins. Akvæði um laun og önnurstarfskjör
skulu vera í samræmi við gildandi kjarasamninga að því er varðar nema í viðkomandi starfsnámi.
I reglugerð, sem menntamálaráðherra setur, skulu vera ákvæði um starfsþjálfunarsamninga. Þar
skal einnig kveðið á um form, staðfestingu og skráningu námssamninga, svo og samningsslit og
meðferð ágreiningsefna er upp kunna að koma varðandi framkvæmd samrungs. Aður en reglugerð þessi
er sett skal leitað umsagnar aðila vinnumarkaðar og samtaka nemenda.
268