Jólaklukkur - 01.12.1958, Page 3

Jólaklukkur - 01.12.1958, Page 3
*»Og ég vil... . auðsýna Náðvana náð og segja við Ekki-minn-lýð: I>ú ert minn lýður; og hann mun segja: Guð minn.“ yrkrið er skollið á, og tunglið er að byrja að gægjast fram. Það má greinilega sjá, hvernig það færist upp yfir fjallsbrúnina. Eftir skamma stund er það eins og glóandi hnöttur yfir Burdji. í kvöld á að vera samkoma á stöðinni. Konurnar láta ekki sjá sig eftir myrkur, en karlmennirnir eru vanir að fjölmenna. Tveir skóladrengir hafa verið að undirbúa samkomuna allan eftirmiðdaginn. Þeir hafa keypt eldivið og vatn, sett pott á stein- hlóðir fyrir utan skólann og soðið þar shum- bura-baunir handa samkomugestunum. Það fer nú að líða að því að samkoman hefjist. Ungir drengir frá Bedengeltu og Okotto eru að rabba við heimavistardreng- ina fyrir framan skólann. Nokkrir fullorðn- ir samkomugestir eru þegar komnir. Það eru aðallega gestir langt að komnir. En ekki má byrja fyrr en Okotto-menn eru komnir. Þeir eru fjölmennastir. Kiffile, einn af heimavistardrengjunum, hringir klukkunni. Nágrannarnir í Beden- geltu vita þá, að samkoman á að fara að byrja, og Okotto-menn flýta sér e.t.v., þeg- ar þeir heyra í klukkunni. Þarna eru gömlu mennirnir frá Derra. JÓLAKLUKKUR Þá vantar aldrei. Ósjálfrátt verður manni hlýtt um hjartaræturnar við að sjá þá. Þeir hafa lengst af verið einir kristnir í Derra, en hvort þar er orðin breyting á, veit ég ekki. Og þarna er lágvaxni maðurinn frá Búsó með rauðleita teppið. Hann er „birikja", þ.e.a.s. hann er kaupmaður og ferðast með varning sinn til annarra héraða. Áður lét hann stjórnast af öndunum, nú þjónar hann Jesú. En eitt þurfti hann að fullvissa sig um. Myndi andinn nú ekki sitja fyrir honum einhvers staðar í óbyggðum? Ætli Jesús mvndi fara með honum í ferða- lögin, eða yrði hann eftir í Konso? Hann gladdist innilega, þegar ég sagði honum, að Jesús væri alltaf og alls staðar nálægur þeim, sem ákölluðu hann af hjarta. Kúsía frá Búsó er þarna einnig. Hann liggur inni í skólastofunni og virðist sofa, en hann er bara þreyttur eftir gönguna. Hann er ófrýnilegur, blindur og með stórt kýli á hægri kinn. Lítil telpa hefur leitt hann hingað. Kúsía vill verða kristinn, en andinn hefur ekki verið á því að sleppa honum. Þegar við fórum heim, var hann enn svo mjög á valdi hins illa, að hann gat sjaldan hlýtt á bænir eða prédikanir án þess að ókyrrast. Aumingja Kúsía. Samt átti hann það til, að standa upp og vitna um Jesúm. Þá þarf ekki að spyrja að því, hvort 1

x

Jólaklukkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólaklukkur
https://timarit.is/publication/1831

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.