Jólaklukkur - 01.12.1958, Side 7
^ÍÆt d'döiizöbtáþi
Benedikt Jasonarson, kristniboði, dvelst meðal
Þjóðflokksins Konso í Eþíópíu ásamt konu
sinni, Margréti Hróbjartsdóttur, og Ingunni
Gísladóttur, hjúkrunarkonu. Hér fer á eftir
stuttur kafli úr bréfi frá Benedikt. —
/
borðinu fyrir framan mig er dós
undan súlfatöflum. Það eru pen-
ingar í henni núna, og þeir eiga sér sína
sögu. Þriðjudaginn 8. júlí kom hingað kona
úr Bedengeltúþorpinu handan við veginn.
Hún hafði verið djöflaprestur um fjölda
ára, en vildi nú segja sig úr þjónustu Sat-
ans og trúa á Jesúm. Við báðum með henni
og fyrir henni. Hún var haldin af djöflin-
um, en Drottinn leysti þá fjötra af henni,
svo að núna situr hún róleg og stillt, þeg-
ar beðið er, í stað þess að fá æðisköst eins
og áður. Þessi kona lét fleyja öllu, sem til-
heyrði djöfladýrkuninni, úr húsi sínu og
afhenti auk þess 1,25 dal, sem hún hafði
hugsað sér að kaupa eitthvað fyrir handa
djöflinum, eins og hún komst að orði.
Ég hef geymt þessa peninga út af fyrir
sig og hugsað mér, að þeir yrðu fyrsti
vísir að safnaðarsjóði safnaðar evangelisk-
kristinna Konsomanna. Síðan hafa bætzt
3.25 dalir í sjóðinn. 2.75 eru fyrir geit,
sem gamall gallikja (seiðmaður) frá Ok-
ottó losaði sig við, þegar hann sagði skilið
við Satan á laugardaginn var. Hann féllst
starx á, að andvirði hennar yrði lagt í safn-
aðarsjóð. Enginn vill ’kaupa slík fórnardýr
JÓLAKLUKKUR
nema starfsmenn kristniboðsins og skóla-
drengirnir. 1 þetta sinn keyptu skóladreng-
irnir það fyrir rúmlega hálfvirði og hafa
víst etið hvert tangur og tetur af því núna.
í dósinni er líka 1 skildingur (0,50), sem
ég veit ekki, hvernig er kominn þangað.
Hann verður þar að sjálfsögðu áfram. —
Ég bið Drottin þess, að stofnun safnaðarins
verði brátt veruleiki. Þess væri ekki langt
að bíða, ef nægir starfskraftar væru til þess
að annast skírnarfræðslu fyrir þá, sem vilja
gerast 'kristnir. —
Nú syngja þær á kvennafundinum Galla-
sönginn: Jesús elskar mig. Margar kvenn-
anna hafa komið á kvennafundina, síðan
þeir hófust, og verða, ef Guð lofar, á meðal
þeirra, sem mynda söfnuðinn, þegar þar að
kemur. Margrét kom inn rétt í þessu og
segir mér, að konurnar hafi að þessu sinni
verið 43 auk barna.
Nú er kominn nýr dagur. Það fór að
rigna í nótt, svo að það er kalt og hráslaga-
legt. Mér varð nærri því á að skrifa, að
núna væri 20 gráðu kuldi á Celsíus, en 20
gráðurnar eru að sjálfsögðu ofan við frost-
markið! Samt skjálfa allir og kveinka sér. —
Allt er afstætt. — Og við íslendingar erum
lítið betri en aðrir. Ég sit hér í þykkri ullar-
peysu, en samt verður mér nærri því á að
taka undir kveinstafina. —
Mér verður litið út um gluggann og sé
þá prédikarann og Konsomann heilsast. —
5