Jólaklukkur - 01.12.1958, Síða 8
Sjálfur ætla ég að fara að undirbúa nám-
skeiðið, sem á að byrja hér í næstu viku.
Ég kalla því í Dasaw og bið hann að hafa
guðræknisstundina í sjúkraskýlinu fyrir
mig. Klukkan er 9.20, en engir sjúklingar
komnir enn. (Það er kalt í dag, og menn
koma seint.) Um leið spyr ég Dasaw, hvaða
erindi maðurinn eigi við hann.
— Hann er frá Bedengeltú og vill gerast
kristinn. Ég ætlaði að fara að tala við hann,
þegar þú kallaðir.
— Er hann gallikja? spyr ég
— Ég veit það ekki enn, en það kemur í
ljós, þegar við tölumst við, segir Dasaw.
Það líður varla sá dagur, að einhverjir
komi ekki í sömu erindum og þessi maður.
Og það hefur glatt okkur mjög, að margir
þeirra eru úr nágrannaþorpinu, Beden-
geltú. — Við höfum á tilfinningunni, að
stórviðburðir séu í aðsigi. Mörg undur hafa
gerzt. Því að það eru sannkölluð undur,
þegar kallið frá Guði nær að komast inn
í formyrkvuð hjörtu djöfladýrkenda og
hrífa jafnvel handgengustu þjóna hins illa
úr greip hans.
Ég ákvað að bíða með að ljúka bréfinu
þar til námskeiðið væri hafið, svo að ég
gæti skrifað þér fréttir af því. Við byrjuð-
um í gærkvöldi, og voru þá 7 mættir, en
þegar kvöldinu lauk, voru nemendur orðnir
tuttugu og einn.
Stundvísin er mönnum ekki í blóð borin
hér um slóðir. Ég sagði þeim í gær, að ég
mundi hringja hálftíma fyrir sex og þá
væri bezt fyrir þá að leggja af stað að heim-
an. Ef þeir kæmu stundvíslega, mundu þeir
ekki missa af neinu. í gær var sagt frá boð-
un Maríu og fæðingu Jóhannesar. — Ég
hlýddi yfir á eftir, og mig furðaði á, hve
sumir höfðu verið eftirtektarsamir. Nú er
bara eftir að vita, hvernig verður með út-
haldið. Það verður spennandi að sjá, hve
6
margir koma í kvöld. Núna er hellirigning,
og haldi þessu áfram, verður fámennt.
Nú er komið kvöld og kennslustund
lokið. Tuttugu og þrír mættu! Af þeim
voru 15 þeirra, sem komu í gær. Og þó
rigndi til klukkan að ganga fimm og færð
ill, moldartraðirnar sleipar. Þegar svona
viðrar, fara menn ekki út fyrir hússins dyr,
nema þeir megi til. Sóknin var því mikil
uppörvun.
Þegar ég hafði endursagt jólaguðspjallið
og spurt út úr eins og í gær, var kennslu-
stund fyrir byrjendur í lestri. Kennt er
amhariska stafrófið. Nýi kennarinn gerði
það með aðstoð Gallatúlks, þar eð hann
talar ekki sjálfur það mál. Annars eru tveir
túlkar mér til aðstoðar, túlkar annar úr
ensku yfir á amharisku, hinn á Galla-mál.
Það er hrífandi að kenna þessu fólki. Það
gleypir hvert orð. Svo mikill er áhuginn
á að heyra sagt frá Jesú, að það virðist
gleyma bæði stund og stað og lifa sig inn í
frásögurnar, sérstaklega ef ég nota jafn-
hliða Biblíumyndir. Það er bæn mín, að
sæðið falli í góða jörð og beri þar marg-
faldan ávöxt Drottni til dýrðar.
Berðu kristniboðsvinum hvarvetna
kveðju okkar. Við þökkum Drottni ætíð,
þegar við minnumst þeirra.
Benedikt Jasonarson.
JÓLAKLUKKUR