Jólaklukkur - 01.12.1958, Qupperneq 9
_/lfazatat,
Æ T T B O R G
J E S Ú
Eftir ÓLAF ÓLAFSSON, kristniboða.
settist hann að í borg, sem heitir Nazaret, til
þess að það skyldi rætast, sem spámennirnir hafa
sagt: Nazarei skal hann kallast“. — Matt. 2. 23.
azaret er einn þeirra staða í Israel,
sem við eru tengdar helgar minn-
in,gar frá jarðvistardögum Jesú. Ferðamönn-
um finnst sem þeir hafi naumast til ísrael
komið, ef þeir hafa ekki séð Nazaret. En
á tímum Jesú var að máltæki haft: „Getur
nokkuð gott komið frá Nazaret!"
Fjölmargir íslendingar — og þá einkum
sjómenn hafa á síðari árum farið til Naz-
aret, þangað er ekið á nokkrum klukku-
stundum, meðan skipið hefur viðdvöl í
hafnarborgunum Tel-Aviv eða Haifa.
Hvergi í Evrópu eru samgöngur betri,
þéttbýli meira eða ræktun blómlegri en á
strandlendinu frá Tel-Aviv norður til Haifa,
— Saronssléttu hinni marglofuðu. Af gróðri
jarðar voru appelsínutrén fegurst, þegar
ég ók þá leið um þetta leyti árs í fyrra. —
Fyrstu appelsínurnar eru fullþroska í des-
embermánuði. Þá glóa á grænum blað-
krónum safaríkar Haifa-appelsínur, líkt og
gular ljósaperur.
Esdraelonslétta — eða Jezreelslétta, — sem
Israelsmenn nefna að vísu „emek“ eða dal,
liggur um þvert land norðaustan megin við
Karmelfjallgarð, frá botni Akreflóa og
austur að suðurenda Galíleuvatns. Jarðveg-
JÓLAKLUKKUR
ur sléttunnar, dökkur og djúpur, er afar
frjósamur. Úrkoma er mjög lítil, en aðsig
vatns norðan úr hálendinu er mikið og
veðursæld óbrigðul. Þrátt fyrir það var
sléttan öll í mestu órækt er Gyðingar hófu
þar nýrækt um og eftir 1920. Ræktun fell-
ur nú ekki niður tólf mánuði ársins. Við
augum blasa akrar jaðraðir skógarbeltum,
gulir og grænir, eins og reitir á taflborði.
En meðfram vegum og jörðum sléttunnar
eru þorp með stuttu millibili, líkt og á
Biblíutímum, — þyrpingar nýreistra húsa
með hvíta veggi.
Nazaret er miðja vegu á hinni afar-
skemmtilegu leið frá Haifa austur að
Galíleuvatni í Jórdandal.
Bærinn er í hvilft uppi í allhárri kalk-
steinshæð, þar sem Esdraelonslétta liggur
að rótum Galíleuhálendisins sunnanverðu.
íbúar eru 23 þúsund, flestir Arabar, og er
meginþorri þeirra kristnir. Á engum ein-
um stað í ísrael eru stofnanir kristinna
manna, svo sem kirkjur, klaustur, skólar og
sjúkrahús, jafn áberandi og í Nazaret. —
Gamli borgarhlutinn í Jerúsalem, sem
helzt kemur til samanburðar, er innan
landamæra Jórdaníu.
Að koma frá nýræktarsvæðum Esdraelon-
sléttu upp til Nazaret er sem að hverfa
skyndilega nokkrar aldir aftur í tímann. —
Framtaksleysi Araba leynir sér þar ekki,
fremur en á öðrum stöðum, þar sem þeir
7