Jólaklukkur - 01.12.1958, Page 14
Tók Bjarní að rífja upp sagnfræðiþekkíngu
sína um þá staði, er framhjá runnu, og
miðlaði okkur vel af þekkingarbrunni sín-
um. Þetta kom sér mjög vel fyrir þá fjóra
útlendinga, sem með okkur voru og voru
landinu ókunnugir, en það voru tveir
Norðmenn, einn Dani og einn Finni.
Fyrsti viðkomustaður var Vatnaskógur;
þar var ætlunin að borða hádegisverð.
Blessaðar matreiðslukonur Skógarmanna
höfðu staðið kófsveittar við pottana á elda-
vélinni allan morguninn, enda þarf nokk-
ur handtök við að taka á móti 32 manna
fjölskyldu. Móttökurnar reyndust líka eins
glæsilegar og bezt varð á kosið.
Eftir nokkra hvíld í skóginum héldum
við af stað aftur; bifreiðin þaut áfram und-
ir öruggri stjórn Hafsteins. Brátt var Borg-
arfjörður að baki. Holtavörðuheiði blasti
við sjónum okkar. Þegar upp á hana kom,
fengum við vitneskju um það, að einn úr
hópnum hafði stundað hér vegavinnu fyrir
tuttugu árum, en álit flestra í fjölskyld-
unni var það, að lítið myndi vera eftir af
þeirri mold, sem borin hafði verið ofan í
veginn á björtum sumardögum fyrir tutt-
ugu árum.
Til Akureyrar var komið seint urn
'kvöldið. Numið var staðar við hús kristni-
boðsfélagsins. Skyldi þar verða okkar sama-
staður í höfuðborg Norðurlands, meðan
dvalizt yrði í bænum. Næsta dag, sem var
sunnudagur, þustu margir eldsnemma til
sundhallar Akureyrar; vildu menn sem
fyrst losa sig við hin sunnlenzku óhreinindi
af líkama sínum. Aðrir lögðu aftur á móti
leið sína í kirkju bæjarins til þess að kynna
sér, hvað presturinn, er messa skyldi þennan
morgun, hefði fram að færa af andlegu
fóðri.
Eftir hádegið lá leið okkar inn Eyjafjörð,
einhverja fegurstu sveit á landinu. Þar
skoðuðum við Grundarkirkju og Saurbæj-
arkirkju, sem er torfkirkja. Eyjafjörður hef-
12
Atlavík.
ur sem kunnugt er upp á óteljandi sögu-
staði að bjóða, en við létum okkur þessa
nægja, en litum aðra úr fjarlægð. Þetta
kvöld höfðum við velsótta samkomu í sal
kristniboðshússins á Akureyri. Eftir þá sam-
komu var okkur boðið til kaffidrykkju á
heimili formanns K.F.U.M. og K. á Akur-
eyri, Björgvins Jörgenssonar, söngstjóra, og
Bryndísar Böðvarsdóttur, konu hans.
Daginn eftir lá leið okkar að Goðafossi,
síðan að byggðasafninu á Grenjaðarstað.
Þá skoðuðum við einnig Ystahver í Reykja-
hverfi, sem gaus fyrir okkur fallegu gosi.
Hver þessi mun vera stærsti hver á Norður-
landi. Síðdegis var komið til Húsavíkur;
þaðan fórum við yfir Reykjaheiði og niður
í Kelduhverfi; þar er sá frægi staður Ás-
byrgi. Segir gömul þjóðsögn, að byrgið sé
spor eftir Sleipni, hest Óðins, Óðinn hefur
þá að öllum líkindum verið á reiðtúr um
himingeiminn.. Nú hallast menn að því,
að þetta sé gamall farvegur Jökulsár í Axar-
firði. Á þessum fagra og sérkennilega stað
áðum við góða stund. Þá lá leið okkar að
Dettifossi, litum við þann hrikalega foss
í kveldhúminu. Þarna fleygist hið mikla
vatnsmagn jökulsárinnar niður í gínandi
gljúfrið og myndar ógurleg straumköst og
hringiðu á botninum; er engu líkara en áin
liggi þar í fjörbrotum eftir fallið. Þéttur
JÓLAKLUKKUR