Jólaklukkur - 01.12.1958, Qupperneq 15

Jólaklukkur - 01.12.1958, Qupperneq 15
úðamökkur fyllir gljúfrið. Þetta er afar- tilkomumikil sjón. Það var komið miðnætti, þegar við kom- um að Grímsstöðum á Fjöllum. Þar feng- um við ágætar móttökur á allan hátt; svefnstaður okkar var samkomubraggi, sem stóð þar í túninu. Morguninn eftir vorum við snemma á fótum; sólskin var og blíða; drukkum við morgunkaffið í steikjandi sólarhitanum á grasbala fyrir framan braggann. Síðan var lagt af stað, nú lá leiðin til Austurlands; það var fremur gróðurlítið land, sem við ókum yfir; þó er Möðrudalur undan skil- inn með sinni fögru, hvítmáluðu kirkju. Fjallahringur er þarna dásamlegur, ber Herðubreið af, hvað fegurð snertir. Það er sannkallaður konungur fjallanna, sveipað geisladýrð sólarinnar og hjúp blárrar móðu fjarlægðarinnar. Við ókum þarna klukku- stund eftir klukkustund, en þetta tók enda, og Jökuldalur birtist. Á hægri hönd höfð- um við lengst af Jökulsá á Brú, kolmó- rauða og straumharða. Að lokum blasti við okkur Fljótsdalshérað blómlegt og fagurt. Síðdegis ókúm við yfir Lagarfljötsbrúna, 300 metra langa, að Egilsstöðum, miðstöð héraðsins. Frá Egilsstöðum lá leið okkar upp í Hjaltastaðáþingá að félagsheimilinu þar. Tók þar á móti okkur bóndinn í Rauðholti, Sævar Sigbjarnarson, en hann hafði útvegað okkur félagsheimilið til að- seturs, meðan dvalizt yrði þar í sveitinni. í sal félagsheimilisins höfðum við ágæta kvöldvöku um kveldið. Morguninn eftir var ákveðið að fara að sjá Borgarfjörð, sem er rómaður mjög fyrir fegurð. Báðum við Sævar að gerast leiðsögu- maður okkar þangað. Gaf Sævar okkur á- gætar upplýsingar um sögu sveitarinnar; hafði hann hljóðnema bifreiðarinnar í sín-' um höndum og gaf okkur skýringu á öllu um leið og bifreiðin ók í átt til Borgar- JÓLAKLUKKUR Krossinn í Njarðvíkurskriðum. fjarðar. Sævar fræddi okkur á því m. a., að hér hefði Uni Garðarsson, kallaður hinn danski, numið land. Sýndi hann okkur Unaós, þar sem Uni byggði bæ sinn. Nú er Unaós langt upp í landi; hafa ár þær er falla í héraðsfló séð um það. — Þegar kom- ið er upp í Vatnskarð, sést afar vítt yfir hérað og Héraðsflóa allt til Langaness. — Við vorum afar heppin, hvað skyggni var gott þennan dag. Á þessari leið er farið yfir svonefndar Njarðvíkurskriður, þóttu þær afar hættulegar yfirferðar áður fyrr, en nú er kominn ágætur bílyegur yfir skrið- urnar; all lirikalegt er samt að horfa af ve.garbrúninni og niður í fjöruna. Norðan við miðjar skriðurnar er trékross við veginn með latneskri áletrun: „Effigiem Christi qui transis pronus honora. — Anno MCCCVI.“ Stóð kross þessi áður á gras- jaðri ofan við götuna. Hann hefur oft verið endurnýjaður, en jafnan með sömu áletrun. Segja munnmæli, að laust eftir 1300 hafi óvættur, er Naddi nafndist, hafzt við í helli, sem er ofarlega í gili því, er Nadda- 13

x

Jólaklukkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólaklukkur
https://timarit.is/publication/1831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.