Skinfaxi - 01.02.2018, Qupperneq 4
4 SKINFAXI
Efnisyfirlit
16–17 Landsmótið hefur góð áhrif á Sauðárkrók.
8 Öflugt ungt fólk með áhuga á
samfélaginu.
22 Stúkan á Grenivík sameinar
bæjarbúa.
36 Hafa mætt á Unglingalands-
mót UMFÍ 12 ár í röð.
10 Hvaða breytingum kallar ungt
fólk eftir?
13 Skyndiákvörðun sem breytti
lífi Tómasar.
40–41 Skipta styrktarfé með
nýjum hætti.
14–15 Mót UMFÍ hafa góð áhrif
á bæjarfélög.
18 Landsmótið – sannkölluð
íþróttaveisla.
6 Fjárveitingar háðar því að
félögin vinni eftir siðareglum.
24 Skiptir málið að hitta fólkið
– Guðríður Aadnegard, HSK.
26–29 Leikur á grunnskólamóti
UMSK í blaki.
30 Blakarar drífa sig í ringó
– Sigríður Bjarnadóttir, Glóð.
32 Erlent samstarf UMFÍ.
34–35 Sjáumst á Unglinga-
landsmótinu í Þorlákshöfn.
40 Skipta styrktarfé með nýjum
hætti.
42 Forkólfar miðla þekkingu á
hreyfingu.
47 Mamma er fyrirmyndin mín í
hreyfingu.
48–49 Samvinnan er lykill að
endurreisn HSH.
Leiðari LANDSMÓT UMFÍ … Þegar ég heyri þessi orð
fæ ég fiðr ing í úti legu genin. Ég fór fyrst á Lands-
mót á Akureyri 1981 og hef fyrir löngu misst
töluna á því hversu mörg þau hafa orðið eftir
það. Rík hefð hefur skapast fyrir því í fjölskyld-
unni að við sækjum mótin saman. Við skellum
útilegudótinu í bílinn eða hengjum fellihýsið
aftan í hann og brunum landshorna á milli.
Unglingalandsmótin hafa verið sérstaklega sterk
hjá okkur og við förum alltaf saman.
Börnin mín hafa öll verið keppendur á Unglinga-
landsmótum allt frá því að fyrsta mótið var haldið
á Dalvík árið 1992. Nú eru þau komin yfir keppnis-
aldur, barnabörnin hafa tekið við af þeim og
nú förum við öll á mótin.
Landsmótin og Unglingalandsmótin
eru stór skemmtilegar fjöl skylduútilegur
og alltaf bætast frænkur og frændur í hóp
þátt takenda. Á tjald svæði Unglinga-
landsmótsins í fyrrasumar vor um við
sextán úr fjölskyldunni. Þegar UMFÍ
bætti í mótaflóruna og byrjaði með
Landsmót UMFÍ 50+ árið 2011
hittust líka fleiri úr fjölskyldunni.
Ég er svo heppin að hafa
öðlast keppnisrétt þar.
Hópurinn úr fjölskyldunni, sem getur tekið þátt í
mót um UMFÍ, stækkar sífellt. Við verðum æ fleiri
sem förum saman á Landsmót. Þótt á Lands -
mótum UMFÍ 50+ sé keppnisaldurinn miðaður
við þá sem komnir eru yfir miðj an aldur er margt
skemmti legt í boði fyrir alla. Oft eru grein ar fyrir
fólk á öllum aldri sem gera mótin að frábærri
skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Í sumar verður aldeilis nóg um að vera fyrir
allar svona landsmótssjúkar fjölskyldur. Á Lands-
mótinu á Sauðárkróki nú í júlí getur öll fjölskyld-
an fundið eitthvað við sitt hæfi, bæði í keppni og
leik. Þá verður líka stórskemmtilegt þegar við för -
um á Ung lingalandsmótið í Þorlákshöfn um versl -
unarmannahelgina.
Nú er bara um að gera að taka fellihýsið
og annað úti legu dót fram. Þetta verður
skemmtilegt sumar.
Sjáumst á Sauðárkróki 12.–15. júlí
og svo aftur í Þor láks höfn um verslunar-
mannahelgina 2.–5. ágúst.
Ragnheiður Högnadóttir,
meðstjórnandi í stjórn UMFÍ.