Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2018, Blaðsíða 36

Skinfaxi - 01.02.2018, Blaðsíða 36
36 SKINFAXI Hjónin Falur Harðarson og Margrét Sturlaugsdóttir eiga tólf ára dóttur sem hefur mætt á hvert einasta Unglingalandsmót UMFÍ frá fyrsta ári. Hún stefnir á að bæta því þrettánda við um verslunarmannahelgina í Þor­ láks höfn. Þau Falur og Margrét segja einfalda ástæðu fyrir því að fjölskyldan hafi farið svona oft á Unglingalandsmót UMFÍ. Elsta dóttir þeirra tók þátt í mót­ inu þegar þegar hún var um 11 ára á Laugum í Reykjadal árið 2006. Það var fyrsta mótið sem fjölskyldan sótti og hafa þau ekki misst úr ár í allan þenn­ an tíma. Þau eiga þrjár dætur og eina fósturdóttur og hafa þær allar keppt á mótunum og ætíð Hafa mætt á Unglingalandsmót UMFÍ 12 ár í röð keppt í körfubolta. Sú yngsta var ekki orðin ársgömul þegar hún fór með eldri systrum sínum og foreldrum á mótið. Þau Fal og Margréti þarf vart að kynna fyrir íþróttafólki. Falur spilaði lengi körfubolta með Keflavík, íþrótta­ og ungmenna­ félagi, er fyrrverandi landsliðs­ maður í körfubolta og þjálfar nú karlalið Fjölnis í körfubolta. Margrét hefur jafnframt verið tengd körfuboltanum lengi. Hún spilaði með Keflavík og íslenska landsliðinu og hefur verið landsliðsþjálfari hjá yngri landsliðum KKÍ til margra ára. Nú þjálfar hún meistaraflokk kvenna í körfubolta hjá Breiða­ bliki. Falur segir Unglingalandsmót UMFÍ fastan punkt í ferðasumri fjölskyldunnar. „Við ferðuðumst lítið innanlands hér áður fyrr. En núna er það orðinn fastur liður í tilverunni að leigja hjól­ hýsi og fara í viku ferðalag í kringum Landsmótið. Yfirleitt heim sækjum við nærumhverfi móts staða eftir mótin á hverju ári,“ segir hann. Unglingalandsmót UMFÍ er fyrir ungmenni 11 til 18 ára. Elsta dóttirin í fjölskyldunni er orðin eldri. Þau Falur og Margrét ætla að halda áfram að mæta á mótin með hinar dæturn­ ar. „Við stefnum auðvitað á að koma með okkar yngstu á 18 mót í röð,“ segir Falur. Falur Harðarson og fjölskylda hans hafa mætt með dætur sínar á Unglingalandsmót á hverju ári síðan árið 2006. Þau ætla ekki að sleppa mótinu í ár.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.