Skinfaxi - 01.02.2018, Page 36
36 SKINFAXI
Hjónin Falur Harðarson og
Margrét Sturlaugsdóttir eiga tólf
ára dóttur sem hefur mætt á
hvert einasta Unglingalandsmót
UMFÍ frá fyrsta ári. Hún stefnir
á að bæta því þrettánda við um
verslunarmannahelgina í Þor
láks höfn.
Þau Falur og Margrét segja
einfalda ástæðu fyrir því að
fjölskyldan hafi farið svona oft
á Unglingalandsmót UMFÍ.
Elsta dóttir þeirra tók þátt í mót
inu þegar þegar hún var um 11
ára á Laugum í Reykjadal árið
2006. Það var fyrsta mótið
sem fjölskyldan sótti og hafa
þau ekki misst úr ár í allan þenn
an tíma. Þau eiga þrjár dætur og
eina fósturdóttur og hafa þær
allar keppt á mótunum og ætíð
Hafa mætt á Unglingalandsmót UMFÍ 12 ár í röð
keppt í körfubolta. Sú yngsta var
ekki orðin ársgömul þegar hún
fór með eldri systrum sínum og
foreldrum á mótið.
Þau Fal og Margréti þarf vart að
kynna fyrir íþróttafólki. Falur
spilaði lengi körfubolta með
Keflavík, íþrótta og ungmenna
félagi, er fyrrverandi landsliðs
maður í körfubolta og þjálfar
nú karlalið Fjölnis í körfubolta.
Margrét hefur jafnframt verið
tengd körfuboltanum lengi.
Hún spilaði með Keflavík og
íslenska landsliðinu og hefur
verið landsliðsþjálfari hjá yngri
landsliðum KKÍ til margra ára.
Nú þjálfar hún meistaraflokk
kvenna í körfubolta hjá Breiða
bliki.
Falur segir Unglingalandsmót
UMFÍ fastan punkt í ferðasumri
fjölskyldunnar. „Við ferðuðumst
lítið innanlands hér áður fyrr.
En núna er það orðinn fastur
liður í tilverunni að leigja hjól
hýsi og fara í viku ferðalag í
kringum Landsmótið. Yfirleitt
heim sækjum við nærumhverfi
móts staða eftir mótin á hverju
ári,“ segir hann.
Unglingalandsmót UMFÍ er
fyrir ungmenni 11 til 18 ára.
Elsta dóttirin í fjölskyldunni er
orðin eldri. Þau Falur og Margrét
ætla að halda áfram að mæta
á mótin með hinar dæturn
ar. „Við stefnum auðvitað á að
koma með okkar yngstu á 18
mót í röð,“ segir Falur.
Falur Harðarson og fjölskylda hans hafa mætt með
dætur sínar á Unglingalandsmót á hverju ári síðan
árið 2006. Þau ætla ekki að sleppa mótinu í ár.