Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2018, Blaðsíða 16

Skinfaxi - 01.02.2018, Blaðsíða 16
16 SKINFAXI Landsmótið hefur góð áhrif á Sauðárkrók Ingibjörg Klara, Sigríður og Þorvaldur bregða á leik á útikörfuboltavellinum á Sauðárkróki. Það er ærið verkefni að skipuleggja stóra viðburði á borð við Lands- mót á Sauðárkróki. Ingibjörg Klara Helgadóttir, sem tók við for- mennsku í Ungmennasambandi Skagafjarðar (UMSS) í vor, skellti sér í körfubolta með þeim Þorvaldi Gröndal, frístundastjóra Skaga- fjarðar, og Sigríði Svavarsdóttur, formanni landsmótsnefndar. Þau voru spurð út í hitt og þetta tengt Landsmótinu og mótahaldi almennt. Skagfirðingar eru nefnilega engir nýgræðingar á sviði stór- móta sem hafa verið haldin í sveitarfélaginu um áratuga skeið. Í bænum hafa tvisvar verið haldin Landsmót UMFÍ og Unglinga- landsmót UMFÍ á Sauðárkróki í þrígang (2004, 2009 og 2014). Þau eru sammála um að mótahald UMFÍ hafi góð áhrif. Á Sauðár- króki hafa íþróttamannvirki og aðstaða til íþróttaiðkunar verið tekin í gegn í tengslum við mótahald auk þess sem mótin hafa góð áhrif á íþróttaiðkun ungmenna og bæjarbúa almennt. Íþróttamannvirkin byggð upp „Mót eins og þetta hefur gríðarlega góð áhrif í sveitarfélaginu. Hér hefur verið mikil uppbygging íþróttamannvirkja í gegnum tíðina. Frjálsíþróttavöllurinn hér er góður og nú nýlega var vígður nýr gervi- grasvöllur sem mun nýtast vel fyrir Landsmótið. Mót sem þetta hefur góð áhrif fyrir íbúa og fyrirtæki í sveitarfélaginu Skagafirði, enda má búast við miklum fjölda fólks í fjörðinn í tengslum við mótið. Mér finnst mjög gott að fá Landsmótið í Skagafjörð og ekki síður að finna að fólkið hér er jákvætt fyrir því. Einnig hefur það góð og upp- byggjandi áhrif á unga fólkið okkar því að búast má við því að hingað muni koma þekkt nöfn úr íþróttum, meðal annars til að keppa á Meistaramótinu í frjálsum,“ segir Klara Helgadóttir. I N G I B J Ö R G K L A R A H E L G A D Ó T T I R : Íbúar snúa bökum saman „Við höfum haldið Landsmót áður, Unglingalandsmót og svo önnur mót. Þótt þetta Landsmót sé með öðru sniði en fyrri mót og önnur mót þá er skipulagið alltaf það sama. Það er einhugur í íbúum sveitarfélagsins og við í nefndinni vinnum öll saman að því að gera gott mót,“ segir Sigríður Svavarsdóttir, formaður Landsmóts- nefndarinnar. Af fjölbreyttri dagskránni segist Sigríður hafa áhuga á að fara í þriggja tinda göngu og taka þátt í hlaupunum ásamt því að prófa ýmsar aðrar greinar sem hún hefur ekki snert á áður. „Mig langar líka í pútt og svo margt fleira,“ segir Sigríður. S I G R Í Ð U R S VAVA R S D Ó T T I R :

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.