Skinfaxi - 01.02.2018, Blaðsíða 48
48 SKINFAXI
Haustið 2017 tók Hjörleifur K. Hjörleifsson að sér að verða formað
ur sambandsins. Laufey Helga Árnadóttir tók svo við af Garðari sem
framkvæmdastjóri. Í desember greindust síðan fyrstu merki um líf
í gömlum kroppi þegar héraðsþing HSH var haldið í Ólafsvík. Þar
voru ársreikningar síðastliðinna tveggja ára lagðir fram og kosið í
stjórn. Á þingið mættu 45 þingfulltrúar frá öllum aðildarfélögum
og var það meira en reiknað var með. Laufey sagði eftir þingið kraft
í sambandinu og horfði allt til betri vegar fyrir íþróttafólk og ungu
kynslóðina á svæði HSH.
Meiri samvinna skilar árangri
Héraðsþing HSH var svo haldið í apríl og komu þar fram ýmsar
hugmyndir sem taldar voru geta eflt starfsemina enn frekar. „Þetta
voru í fyrsta lagi hugmyndir sem lutu að því að auka samstarf
aðildarfélaga HSH og ýmislegt fleira til úrbóta. Við erum að skoða
útfærslur á því en erum engu að síður farin að vinna betur saman,“
segir Laufey.
Samvinnan er lykill að
endurreisn HSH
HSHfólk þekkir vel til samstarfsverkefna og hefur sambandið
verið lykilaðili í SamVest, samstarfi sjö héraðssambanda á Vestur
landi og Vestfjörðum í frjálsum íþróttum um nokkurra ára skeið.
Íþróttadagar HSH eru enn eitt samvinnuverkefnið en hugmynd
in kom fram hjá stjórn HSH í vetur. Á íþróttadögum heldur eitt
aðildarfélag HSH hverju sinni dag sem tileinkaður er starfi þess og
það er kynnt fyrir gestum og gangandi. HSH vinnur með aðildar
félaginu að því að kynna daginn.
„Þetta var hugmynd sem kom upp í vetur til að kynna betur fyrir
iðkendum HSH hvað sé í gangi hjá öðrum félögum. Við erum frekar
smá hvert í sínu horni en sterkari saman. Í Stykkishólmi er körfu
bolti mjög sterkur og fótbolti í Snæfellsbæ. Grundfirðingar stunda
blak og svo eru frjálsar íþróttir í Staðarsveitinni, sem dæmi. Við leit
uðum til félaganna með uppástungu um að þau myndu halda einn
dag og kynna íþróttina fyrir öðrum innan HSH. Fólk tók mjög vel
í það,“ segir Laufey. Verkefnið byrjaði í apríl sl. og var frá upphafi
stefnt að því að það stæði inn í sumarið.
Skurkur var gerður í starfi Héraðssambands Snæfells- og
Hnappadalssýslu í fyrrahaust. Nauðsynlegt þótti að grípa
til aðgerða. Enginn formaður hafði verið við stýrið í þrjú
ár og treglega hafði gengið að fá fólk til starfa í stjórnina.
Héraðsþing hafði heldur ekki verið haldið um hríð og
hafði Garðar Svansson framkvæmdastjóri ekki undan að
sinna verkefnunum.