Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2018, Blaðsíða 11

Skinfaxi - 01.02.2018, Blaðsíða 11
 SKINFAXI 11 Hvernig fræðslu um forvarnir kallar ungt fólk eftir? • Áhrif af rafrettum, skaðsemi þeirra og langvarandi áhrif. • Fræðslu og umræðu um geðheilbrigðismál, kvíða, stress og þunglyndi. - Hvernig sé hægt að nýta stress á jákvæðan hátt. - Hvenær sé eðlilegt að vera kvíðinn og/eða stressaður og hvenær þetta sé komið yfr heilbrigð mörk. • Þjálfun og næring - Hver eru einkenni ofþjálf- unar og hvað er til ráða ef maður upplifr einkennin? - Næringarfræði, átröskun og fæðubótarefni: Hvað þarf líkaminn? Hvaða fæðubótarefni eru í lagi? Þarf að taka inn fæðu- bótarefni? Hvar er hægt að leita sér aðstoðar? • Samfélagsmiðlar - Hver eru áhrif samfélags- miðla á líkama og sál? - Geta áhrifn valdið kvíða, streitu og þunglyndi og haft neikvæð áhrif á svefn? - Hvað er eðlilegt að verja löngum tíma á netinu á dag? Ungmennafélög stofni ungmennaráð Í umræðupartýunum kom fram nokkuð mótsagnakennd afstaða til þeirra félaga sem ungmennin eiga aðild að. Þeim finnast félög­ in nefnilega bæði bæði vera nú ­ tíma leg og gamaldags. Mörg félög nýta sér samfélagsmiðla til þess að koma upplýsingum á fram færi. Aftur á móti má ekki gleyma því að oft reynist sú gamla aðferð vel að fara og hitta fólk í eigin persónu. Það er við ­ bót við það að nota samfélags­ miðla til að koma upplýsingum á framfæri. Lítið er um að ungt fólk sitji í stjórnum eða nefndum félaga og því er hætta á því að félögum takist ekki að koma fyllilega til móts við ungmennin. Þetta veld ­ ur því að raddir ungmenna heyr­ ist ekki á þeim stað þar sem hún á að heyrast. Til viðbótar upplifa ung menni mjög takmarkað að­ gengi að stjórnum félaganna í sumum tilfellum. Að auki upp ­ lifa ungmenni athafnir stjórn­ anna sem nokkurs konar for­ eldra­ og/eða afa­ og ömmustarf. Sum ungmenni upplifa sig aðeins sem neytendur félaga en ekki sem þátttakendur. Ung­ menni greiða æfingagjöld sem þeim finnast oft á tíðum há. Það getur leitt til þess að iðkendur sjá ekki ástæðu til að leggja meira á sig fyrir félög sín. Ein hugmynd, sem kom fram í umræðupartýunum, var að stofna ungmennaráð innan hvers ungmennafélags. Ráðið verður að hafa skýran tilgang og hlutverk, vera málsvari ungs fólks og vera sá aðili sem tekur að sér að kynna starf viðkomandi félags fyrir öðru ungu fólki til þess að auka þátttöku unga fólks­ ins innan þess. Besta leiðin til að ná til ungs fólks Í umræðupartýunum komu eðli lega upp vangaveltur um það hvernig best og árangurs- ríkast væri að koma fræðslu og upplýs ingum á fram færi við ungmenni. • Ungmenni voru sammála því að jafningjafræðsla væri það sem virkaði best. Það væri marktæ kasta leiðin. • Stutt myndbönd með húmor ná vel til ungs fólks. • Betra er að einblína á jákvæða þætti en að höfða til hræðslu og draga fram skaðlega þætti þess sem fjallað er um. • Mikilvægt er að halda áfram að ræða um ýmis mál sem flokkast til óþægi- legra mála eða „tabúa“. GÓÐA SKEMMTUN Á Krossey / ��� Hornafjörður / ��� ���� / www.sth.is LANDSMÓTI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.