Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2018, Síða 15

Skinfaxi - 01.02.2018, Síða 15
 SKINFAXI 15 ORKA NÁTTÚRUNNAR Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík · Sími 591 2700 · www.on.is · on@on.is Það verður stöðugt auðveldara að keyra um landið á orku náttúrunnar, enda fjölgar hraðhleðslum ört við hringveginn. Hraðhleðslur ON gera rafbílaeigendum kleift að ferðast á hreinum, innlendum orkugjafa hringinn í kring um Ísland. Til hamingju rafbílaeigendur og til hamingju Íslendingar! Við opnum hringinn Fitjar Freysnes Hvolsvöllur Geysir Minni Borg Hveragerði Þorlákshöfn Búðardalur Ísafjörður Sauðárkrókur Dalvík Laugar Vopnafjörður Húsavík Ólafsvík Þingvellir Flúðir Vegamót Akranes Borgarnes (2) Staðarskáli Blönduós Varmahlíð Akureyri (2) Mývatn Egilsstaðir Stöðvarfjörður Djúpivogur Reykjavík & nágrenni ( 3) Selfoss Hellisheiði Vík Kirkjubæjar- klaustur Jökulsárlón Raufarhöfn Seljalandsfoss Húsafell Reykjavík & nágrenni (7) Skjöldólfsstaðir Skorradalur (3) Reykholt Nesjahverfi Ásbyrgi Kópasker Virkar hraðhleðslur Hraðhleðslur á áætlun 2018 Hleðslur Hleðsla fyrir hendi. Hraðhleðsla 2018. Allir verða að vera með Þegar Vetrarólympíu- og Sam- veldisleikarnir voru haldnir í kanadísku borgunum Calgary og Vancouver voru íbúar þar mót- fallnir framkvæmdum og upp- byggingu í kringum þá. Helsta ástæðan var sú að almenningi þótti ekki nægilega mikið gagn í þeim íþróttamannvirkjum sem reist voru og að betra hefði verið að eyða opinberu fé í annað. Fram kemur í ritgerð Sindra að nauðsynlegt er fyrir bæjarfélög sem halda mótin og ráðast í kostnaðarsamar framkvæmdir að sækjast áfram eftir því að halda íþróttaviðburði. Með því sé hægt að nýta þá innviði betur sem búið er að byggja upp og þá þarf ekki að ráðast í eins miklar framkvæmdir fyrir önnur mót. Framkvæmdir skila árangri Aðstandendur stórra íþróttaviðburða úti í hinum stóra heimi og stjórn- völd í viðkomandi ríkjum réttlæta þær fjárfestingar sem ráðist er með þeim rökum að ef ekki hefði verið farið í þær þá þegar hefði það þurft hvort eð væri á næstu árum. Þegar lá fyrir að Ólympíuleikarnir yrðu haldnir í München í Þýskalandi árið 1972 var ráðist í upp- stokkun á lestakerfi borgarinnar fyrir háar fjárhæðir. Brettar voru upp ermar og verkinu lokið á sex árum í stað 10–15 sem það hefði annars tekið. Framkvæmdirnar standa enn fyrir sínu því að lesta- kerfið er í fínu standi og sinnir hlutverki sínu enn í dag. Svipað var uppi á teningnum fyrir Ólympíuleikana í Peking árið 2008. Þar var alþjóðaflugvöllurinn í borginni stækkaður fyrir leikana. Þetta hefur skilað því að flugvöllurinn hefur stokkið úr því að vera í þrítug- asta sæti yfir mest sóttu flugvelli í heiminum í það áttunda. Íþróttaferða- mennska Unglingalandsmót UMFÍ flokkast til íþróttaviðburðaferðamennsku (e. sport event tourism). Sindri segir slíka viðburði orðna fjöl- marga á Íslandi. Þar á meðal eru Reykjavíkurmaraþonið, Rey Cup, alþjóðleg knattspyrnuhátíð fyrir yngri flokka í lok júlí, Reykjavik International Games í janúar. Shell-mótið í Vestmannaeyjum, Pæju- mótið í Kópavogi, N1-mótið á Akureyri, Landsmót hestamanna sem haldið er annað hvert ár – og Landsmót UMFÍ í gegnum tíðina. Hvað er íþróttaferðamaður? Íþróttaferðamaður (e. sport tourist) er sá sem tekur þátt í íþróttum á meðan á fríi hans stendur. Þetta geta verið golf- og skíðaferðir, nýt- ing íþróttaaðstöðu á áfangastað og ferðalag þar sem ferðamaður- inn tekur þátt í óformlegum íþróttaviðburðum eins og strandblaks- keppni á strönd. Sindri segir í ritgerðinni að íþróttaferðamönnum sé að fjölga mikið. Talið sé að 10% af heildartekjum ferðaþjónustu í heiminum árið 2012 hafi verið vegna íþróttaferðamanna. Búist er við að hlut- fallið aukist í framtíðinni og og að upphæðir tengdar íþróttaferða- mennsku hækki að sama skapi. Í talnabæklingi Ferðamálastofu, Ferðaþjónusta á Íslandi í tölum, sem kom út í júní 2017, kemur fram að tekjur af erlendum ferða- mönnun innan lands hafi numið 359,7 milljörðum króna árið 2016. Ekki er komið inn á íþróttaferðir í talnabæklingnum. Miðað við mat Sindra má ætla að tekjur af íþróttaferðamennsku geti numið 35,9 milljörðum króna á ári.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.