Skinfaxi - 01.02.2018, Blaðsíða 49
SKINFAXI 49
Brimborg býður 500 mismunandi gerðir fólksbíla og atvinnubíla
frá fimm heimsþekktum bílaframleiðendum.
Komdu í Brimborg og skoðaðu úrvalið!
brimborg styrkir landsmót umfí
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6 • Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5 • Sími 515 7050
KS er þjónustuaðili Brimborgar
á Sauðárkróki brimborg.is
Brimborg styrktarauglýsing UMFÍ A5 20180629.indd 1 29/06/2018 13:50
Að íþróttadögunum koma líka golfklúbbar, hestamannafélög,
skotfélög og fleiri aðildarfélög HSH.
Laufey segir þetta tilraunaverkefni hafa tekist afar vel og stefnir
á að endurtaka leikinn á næsta ári. „Undirtektirnar hafa verið mjög
fínar, íþróttadagarnir hafa verið vel sóttir enda mikið lagt í suma
þeirra eins á knattspyrnudeginum í Ólafsvík. Á næsta ári verður
komin mynd á verkefnið sem félögin geta byggt á,“ segir hún og er
mjög spennt fyrir íþróttadögunum á næsta ári.
Fjöldi iðkenda: 3.113 við árslok 2017
Aðildarfélög: 13
• Umf. Eldborg
• Umf. Staðarsveitar
• Íþróttafélag Miklaholtshrepps
• Íþróttadeild Snæfellsnes
• Umf. Snæfell
• Golfklúbburinn Mostri
• Umf. Grundarfjarðar
• Golfklúbburinn Vestarr
• Umf. Víkingur
• Umf. Reynir
• Golfklúbburinn Jökull
• Skotfélag Snæfellsness
• Golfklúbbur Staðarsveitar
Nokkrir íþróttadagar HSH
• Íþróttadagar á Snæfellsnesi 2018
• Opið hús hjá Skotfélagi Snæfellsness
• Blakdagur hjá UMFG í Grundarfirði
• Umf. Snæfell með körfuboltadag í Stykkishólmi
• Hestamannafélagið Snæfellingur með mót
í Grundarfirði
• UMFG/Víkingur/Reynir með knattspyrnudag
í Snæfellsbæ
• Umf. Staðarsveitar með íþróttaleika á Lýsuhóli,
sömu greinar og keppt er í á Unglingalandsmóti
• Golfklúbbur með uppákomur á golfvöllum innan
sambandsins í sumar.
Ætla að fá fleiri með
Laufey segir fleira í gangi hjá HSH og er íþróttadagurinn hugsað
ur sem tæki á þeirri vegferð. „Við viljum endurvekja Unglingalands
mótið í hugum félagsmanna innan HSH. Við erum bjartsýn á að
það takist og að við náum góðri þátttöku á mótið nú í Þorlákshöfn.“
Laufey segir íþróttadagana nýtast mjög vel til þess að kynna grein
ar sem keppt er í á mótinu. Íþróttadagarnir séu ókeypis, þeir höfði
til allrar fjölskyldunnar og njóti vinsælda hjá börnum og ungmenn
um. Það geti svo leitt til fjölgunar iðkenda og sterkara héraðssam
bands.