Skinfaxi - 01.03.2018, Síða 4
4 SKINFAXI
Nú er að baki viðburðaríkt sumar hjá UMFÍ
og sambandsaðilum. Ber þar hæst Landsmót
með nýju sniði á Sauðárkróki og vel heppn-
að Unglingalandsmót UMFÍ í Þorlákshöfn. Þá
eru ónefnd ýmis minni mót sam bandsaðila
um land allt.
Undirstaðan að farsælu mótahaldi ung-
mennafélagshreyfingarinnar hefur frá upp-
hafi verið fjöldi sjálfboðaliða sem eru alltaf
reiðu bú nir til að leggja fram starfskrafta sína.
Það er ekki alltaf sem áhorfendur og keppend-
ur gera sér grein fyrir öllum þeim handtökum
sem vinna þarf svo að mót geti farið fram.
Kemur þar bæði til undirbúningsvinnan fyrir
mót, handtökin sem nauðsynleg eru á keppn-
isdegi svo að allt gangi greið lega og svo frá-
gangurinn eftir hvert einasta mót. Undirbún-
ingur og frágangur eru atriði sem áhorfend-
ur sjá sjaldnast en eru for senda skemmtilegra
og árangursríkra keppnisdaga.
Á undanförnum árum hefur samkeppni um
frítíma fólks aukist, ekki síst með vaxandi vel-
megun í þjóðfélaginu. Sífellt erfiðara er því að
manna störf í kringum mót og keppnir án þess
að greiðsla af einhverju tagi komi á móti.
Við sjáum líka að sífellt eru gerðar meiri
kröfur til starfs íþróttafélaga. Aukin aðkoma
og stuðningur sveitarfélaga við iðkendur kall-
ar á skýrslugerð og utanumhald. Foreldrar og
iðkendur sjálfir gera kröfur um betur mennt-
aða þjálfara. Þessar auknu kröfur hafa í för
með sér að rekstrarkostnaður eykst. Það veld-
ur því svo að félögin þurfa að auka tekjur sín-
ar. Krafan um auknar tekjur leiðir yfirleitt til
hærri æfingagjalda þar sem setið er um fjár-
muni frá styrktaraðilum.
Það er vissulega áhyggjuefni þegar starfs-
umhverfið breytist. Sveiflur í efnahagslífinu
munu gera félögum jafnt sem heimilum erfitt
fyrir þar sem tíma tek ur að aðlagast nýjum
aðstæðum og vera kann að félögin þurfi
draga úr þjónustu sinni eða leita til sjálf-
boðaliða.
Á þeim tíma sem ég hef starfað inn-
an hreyfingarinnar hef ég oft verið
spurður að því hve mikið ég fái greitt
fyrir vinnu mína. Þegar ég svara því
til að þetta sé sjálfboðastarf og að
launin séu ánægjan hváir viðmæland-
inn í flestum tilvikum: „Ha, ertu
að vinna frítt, af hverju?
Hvernig dettur þér það í
hug?“
En starfið á sér marg-
ar jákvæðar hliðar. Í
gegnum það hef ég
eignast marga kunningja og vini og komið
að mörgum skemmtilegum verkefnum, bæði
stórum og smáum. Það er gefandi að koma
að verkefnum ungmennafélagshreyfingarin-
nar og sjá þau vaxa, dafna og verða að
veruleika. Ég hef heyrt að margir óttist að
festast í sjálfboðavinnu og komist ekki burt,
gefi þeir á annað borð kost á sér í slíkt. Það
er því áskorun fyrir félögin að finna verkefni
sem hæfa hverjum og einum og að verkefnin
rúmist innan þess tíma sem félagar vilja láta
af hendi. Þar geta félögin eflaust gert betur.
Ég skora á sem flesta að kynna sér hvað
félagið þeirra hafi upp á að bjóða fyrir þá
sem vilja gefa af tíma símum í sjálf-
boðaliðastörf. Undirstaða íþrótta-
starfs hefur verið starf sjálfboðalið-
ans og það er hreyf ingunni mikil-
vægt að svo verði áfram. Margar
hendur vinna létt verk, segir máltæk-
ið. Það á svo sannarlega við um
sjálfboðastörf innan ung-
mennafélagshreyfingar-
innar.
Guðmundur Sigur-
bergsson er gjaldkeri
stjórnar UMFÍ
Efnisyfirlit
18 Nýja Landsmótið tókst vel.
31 Gott að sofa meira
– Alma D. Möller landlæknir
34 Fagmennska og trúverðugleiki
félagasamtaka.
36 Hafa áhyggjur af því hvað mörg
börn nota rafrettur.
38 Höfum alla með.
40 Hvernig fór hrunið með starf
ungmannafélaganna?
42 Iðkendur sameinast í sjúkra-
þjálfun.
6 Allir eru velkomnir til ungmenna-
félaganna.
8 Það er langt síðan ég hef séð
drenginn minn hlaupa – biathlon
– Valdimar Gunnarsson
10 Guð, þetta var svo skemmtilegt
mót – Brennóbombur á Landsmóti
12 Iðkendum fjölgar gríðarlega í
Eyjafjarðarsveit.
14 Hver er stuðningur sveitarfélags-
ins við íþróttafélagið þitt?
16 Samstarf skilar góðum árangri.
17 Rosalega skemmtileg óvissuferð.
22 Mér leið eins og Indiana Jones.
24 Unglingalandsmótið í Þorlákshöfn.
28 Góð ráð – Hvernig hrósar þú.
32 Öryggi iðkenda sett í öndvegi.
Leiðari ALLRA HAGUR AÐ GEFA AF SÉR