Skinfaxi - 01.03.2018, Síða 6
6 SKINFAXI
Skinfaxi 3. tbl. 2018
Skinfaxi, tímarit Ungmennafélags
Íslands, hefur komið út samfleytt síðan
árið 1909. Blaðið kemur út ársfjórð-
ungslega. Tímaritið dregur nafn sitt af
hestinum fljúgandi sem dró vagn goð-
sagnaverunnar Dags er ók um himin-
hvolfið í norrænum sagnaheimi.
RITSTJÓRI
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
ÁBYRGÐARMAÐUR
Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ
RITNEFND
Gunnar Gunnarsson formaður, Örn
Guðnason, Eiður Andri Guðlaugsson,
Elísabet Ásdís Kristjánsdóttir og Guð-
munda Ólafsdóttir.
LJÓSMYNDIR
Haraldur Jónasson, Gunnar Gunnars-
son, Jón Aðalsteinn Bergsveinsson,
Hafsteinn Snær Þorsteinsson, Oscar
Rybinski, Eysteinn Auðar Jónsson,
Sabína Steinunn Halldórsdóttir o.fl.
UMBROT OG HÖNNUN
Indígó.
PRÓFARKALESTUR
Helgi Magnússon.
AUGLÝSINGAR
Miðlun ehf. o.fl.
PRENTUN
Ísafoldarprentsmiðja.
FORSÍÐUMYND
Forsíðumyndin, sem Jón Aðalsteinn tók,
er af Fjollu Shala og Maciej Baginski.
STJÓRN UMFÍ
Haukur Valtýsson, formaður, Örn Guðna-
son, varaformaður, Hrönn Jónsdóttir,
ritari,Guðmundur Sigurbergsson, gjald-
keri, Ragnheiður Högnadóttir, meðstjórn-
andi, Gunnar Gunnarsson, meðstjórn-
andi, og Jóhann Steinar Ingimundarson,
meðstjórnandi
VARASTJÓRN UMFÍ:
Sigurður Óskar Jónsson, Gunnar Þór
Gestsson, Lárus B. Lárusson og Helga
Jóhannesdóttir.
SKRIFSTOFA UMFÍ/SKINFAXA
Þjónustumiðstöð UMFÍ,
Sigtúni 42, 105 Reykjavík,
sími: 568 2929.
umfi@umfi.is – www.umfi.is
STARFSFÓLK UMFÍ:
Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmda-
stjóri, Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri,
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, kynningar-
fulltrúi og ritstjóri Skinfaxa, Ómar Bragi
Stefánsson, landsfulltrúi og framkvæmda-
stjóri Landsmóta (með aðsetur á Sauðár-
króki), Sabína Steinunn Halldórsdóttir,
landsfulltrúi og verkefnastjóri, Ragnheið-
ur Sigurðardóttir, landsfulltrúi og verk-
efnastjóri, og Guðbirna Kristín Þórðar-
dóttir, ritari.
UMFÍ
Ungmennafélag Íslands, skammstafað
UMFÍ, er landssamband ungmenna-
félaga á Íslandi. UMFÍ var stofnað á
Þingvöllum 2. ágúst 1907. Sambands-
aðilar UMFÍ eru 29 talsins. Í hreyfing-
unni eru nú um 160.000 félagar í rúm-
lega 300 ungmenna- og íþróttafélögum
um land allt.
Hlutfallslega fá grunnskólabörn af erlendum uppruna taka
þátt í skipulögðu íþróttastarfi. HSH vinnur hörðum höndum
að því að breyta því.
F
jölmenningarhátíð var haldin fjórða árið í röð í Frystiklefanum í
Rifi í október. Þar var Héraðssamband Snæfellsness og Hnappa-
dalssýslu (HSH) með bás þar sem kynntar voru þær íþróttir sem
aðildarfélög sambandsins bjóða upp á. Markhópurinn voru
börn af erlendum uppruna en afar lítið hlutfall þess hóps íbúa á norðan-
verðu Snæfellsnesi stundar skipulagðar íþróttir.
„Fólk er almennt misduglegt að taka þátt í samfélaginu. Sumir eru
komnir hingað til lands aðeins til að vinna en aðrir vilja taka þátt í
hinu og þessu með öðru fólk. Við erum að reyna að ná til þeirra sem
eru ekki í íþróttum. Þetta mun eflaust taka einhvern tíma. En ég er von-
góð,“ segir Laufey Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri HSH. Hún
segir um 80% íslenskra grunnskólabarna stunda íþróttir á sambands-
svæðinu en innan við 20% barna af erlendum uppruna.
HSH var einmitt eitt þeirra fimm félaga og íþróttahéraða sem hlutu
styrk til að vinna að því að fjölga börnum sem eru af erlendu bergi
brotin í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.
Í tilefni af Fjölmenningarhátíðinni lét Laufey og ungmennafélagar á
Snæfellsnesi búa til fjölnota poka merkta HSH. Í þeim voru stundar-
töflur Umf.Víkings/Reynis, Umf. Grundarfjarðar og Umf. Snæfells á
íslensku, pólsku og ensku auk
upplýsinga um HSH. Þá voru í
pokanum bæklingar sem ÍSÍ og
UMFÍ hafa látið gera í tengslum
við samstarfsverkefnið Vertu
með. Þeir sem komu á bás HSH
á fjölmenningarhátíðinni fengu
auk þess tösku merkta HSH og
ýmislegt fleira.
Laufey var á básnum ásamt
fimm ungmennum. Tvær stúlkur
úr Grunnskóla Snæfellsbæjar,
þær Margrét Vilhjálmsdóttir og
Hanna Imgront héldu kynningu
fyrir önnur ungmenni um það af
hverju þær stunda íþróttir og hvaða kosti þær telja að íþróttaiðkun
hafi fyrir aðra krakka. Til viðbótar voru með þeim þau Matthías,
Kristófer og Aldís sem öll voru í peysum merktum HSH og voru búnar
til fyrir Unglingalandsmót UMFÍ um síðustu verslunarmannahelgi.
Þótt Fjölmenningarhátíðin sé að baki þá er verkefni HSH hvergi
nærri lokið. „Kynningin er liður í því að styrkja HSH og kynna hvað
ungmennafélögin á svæðinu hafa upp á að bjóða. Við höfum verið
að dreifa fjölnotapokunum með upplýsingum um íþróttirnar til allra
grunnskólabarna innan HSH-svæðisins og plakötum líka. Einkunnar-
orðin okkkur eru að allir eru velkomnir að vera með og því þurfum
við að ná til flestra,“ segir Laufey og vonar að átak sambandsins
muni leiða til þess að fleiri börn af erlendum uppruna reyni fyrir sér
í íþróttum á vegum félaganna innan HSH. Til að auðvelda fleirum
að taka þátt geta börn sem greiða til ungmennafélags í Grundarfirði
farið til æfinga í Stykkishólmi eða Ólafsvík og öfugt.
„Félögin á Snæfellsnesi vinna öll að því að kynna starfsemi sína
og íþróttir fyrir sem flesta og hafa því opnar æfingar fyrir alla,“ segir
Laufey.
Allir eru velkomnir til
ungmennafélaganna
Eins og sjá má var bás HSH rækilega merktur sambandinu og var
þar mikið í boði.
Laufey Helga Árnadóttir.
HSH var með hugmyndakassa á kynningarbásnum á Fjölmenn-
ingarhátíðinni. Þar skrifuðu börn og unglingar það sem þau vilja
að ungmennafélögin á svæðinu bjóða upp á. Laufey tók niður-
stöðurnar saman og sendi aðildarfélögum HSH. Það kom henni
á óvart að flestir vilja að félögin fari að bjóða upp á skák.