Skinfaxi - 01.03.2018, Side 8
8 SKINFAXI
Biathlon er splunkuný íþróttagrein hér á landi.
Valdimar Gunnarsson hjá UMSK er forvígismaður
greinarinnar. Hann segist sannfærður um að þótt
fjölbreytni í íþróttum sé mikil sameini biathlon svo
margt og hægt sé að útfæra íþróttina á marga
vegu. Það fjölgi möguleikunum fyrir þá sem hafi
gaman af því að hreyfa sig.
Biathlon hefur verið að hasla sér völl hér á landi á
árinu. Margir þekkja greinina sem skíðaskot-
fimi enda hefur verið keppt í henni á vetrar-
ólympíuleikum um árabil og nýtur hún tals-
verðra vinsælda utan landsteinanna. Í skíða-
skotfimi er tvinnað saman skíðagöngu og
skotfimi. Gengið er á skíðum með frjálsri
aðferð ákveðna vegalengd og stoppað
á stöku stað til að skjóta af riffli í mark á
sérstökum skotsvæðum. Þátttakendur, sem
standa sig ekki vel í skotfiminni, þurfa að
hlaupa eða ganga refsihring á skíðunum.
Markmiðið er að verða fljótastur í göngu-
hlutanum og verða fyrstur í mark á sem
stystum tíma.
Biathlon var ein þeirra fjölmörgu greina sem
boðið var upp á á Landsmótinu á Sauðárkróki í júlí í
sumar. Þá voru skíðin fjarri góðu gamni. Í stað þess sprettu þátt-
takendur úr spori og hlupu ákveðna vegalengd á milli þess sem
þeir stoppuðu á skotsvæð um. Keppnin mæltist afar vel fyrir og
skemmtu þátttakendur sér konunglega.
Forvígismaður greinarinnar hér á landi er Valdimar Gunnars-
son, framkvæmdastjóri Ungmennasambands Kjalarnesþings
(UMSK). Hann hefur unnið að því ötullega að sá fræjum skotfim-
innar hér á landi, haldið æfingamót og staðið fyrir reglulegum
kynningum á greininni hjá Breiðabliki í Kópavogi, á bæjarhátíð-
inni Í túninu heima í Mosfellsbæ og víðar.
Það liggur auðvitað beinast við að spyrja:
Af hverju þessi grein?
„Við þurfum alltaf að velta fyrir okkur hvaða
möguleikar bjóðist fólki til að stunda fjöl-
breytta hreyfingu. Greinin þarf ekki endi-
lega að stuðla að því að haldið verði
Íslandsmeistaramót í henni eða annað
alvarlegt. Það mikilvæga er að hafa
gaman af þátt töku í hreyfingu og íþrótta-
tengdri hreyfingu. Þegar ég fór á lands-
mót DGI í Danmörku ásamt UMFÍ og
fulltrúum sambandsaðila sumarið 2017
sá ég biathlon og hugsaði með mér að
þarna væri eitthvað sem gæti komið fólki á
hreyfingu,“ segir Valdimar.
Það er langt síðan ég hef séð
drenginn minn hlaupa
Valdimar Gunnarsson hefur haldið nokkur
æfingamót og haft kynningar víða á hlaupa-
skotfiminni. Íþróttafólk er að hans sögn afar
ánægt með greinina enda hægt að sameina
hana svo mörgum öðrum greinum, þar á
meðal eru hlaup og hjóreiðar auk skíðagöngu.