Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.03.2018, Side 12

Skinfaxi - 01.03.2018, Side 12
12 SKINFAXI „Það er mikill ungmennafélags- andi hjá okkur, hann svífur yfir öllu og það gengur vel,“ segir Berglind Kristinsdóttir, formað- ur Ungmennafélagsins Sam- herja í Eyjafjarðarsveit. Iðkend- um hjá félaginu hefur fjölgað um mörg hundruð prósent í þessu litla sveitarfélagi á milli ára. Sem dæmi má nefna að 3–4 börn og ungmenni æfðu badminton í fyrrahaust. Nú í haust mæta 22 á hverja æfingu. Svipaða sögu er að segja af fleiri greinum sem Ungmenna- félagið Samherjar býður upp á, á haustmisseri. Ráða hefur þurft aðstoðarþjálfara í nokkr- ar greinar. Á félagssvæðinu í Hrafnagilshverfi hefur íbúum fjölgað ört og eru þeir nú um 300. Berglind segir að það hafi gert gæfumuninn að sveitar- félagið hætti að veita fólki styrk til þess að stunda íþróttir auk þess sem tímatafla íþróttafélags- ins var tilbúin áður en skóla- árið hófst í haust. Fólk vill æfa í heimabyggð „Við erum í samkeppni við Akureyri. Þegar þeir sem hér búa vildu taka þátt í skipulögðu tómstundastarfi í einhverju sem var ekki í boði heima heldur á Akureyri gat fólk fengið styrk fyrir því. Þessu var hætt í fyrra. Þess í stað fór sveitarfélagið að greiða meira til íbúa í sveitinni sem stunda íþróttir og aðrar tómstundir í heimabyggð,“ segir Berglind. Líka má nefna að það gekk vel að ráða flotta þjálfara og að ganga frá tímatöflu sem gerir ráð fyrir æfingum barna og ungmenna í frístundum eða strax eftir skóla, það er að segja frá klukkan 14 til 16. „Þetta gerir yngstu börnunum kleift að æfa allar þær greinar sem við bjóðum upp á. Engu skiptir hvort þau æfa eina grein eða fleiri. Gjaldið er eitt, 10.000 krónur á önn,“ segir Berglind. Það sama á við um unglingastigið. En ungmennin geta líka skráð sig í tíma fyrir fullorðna, svo sem í bandí, þrek- tíma, blak, zumba, badminton og fleira. Fullorðnir greiða 15.000 krónur fyrir önnina og geta valið úr fjölda greina. Flest- ir fullorðinna í Eyjafjarðarsveit velja þó að æfa aðeins eina grein. Handverkshátíðin er lykill að íþróttastarfinu Berglind segir þessa þrjá þætti skila því að Ungmennafélagið Samherjar geti boðið upp á meira úrval en áður í skipu- lögðu tómstunda- og æskulýðs- starfi og fjölgað iðkendum svo mikið sem raunin er. Berglind bendir þó á að fjórða þáttinn vanti. Hann sé stór hluti í starfi Samherja enda er ungmennafélagsandinn allt- umlykjandi í því verkefni. Það er handverkshátíðin sem haldin hefur verið á hverju ári í rétt rúma kvartöld og er ein elsta bæjarhátíð landsins. „Handverkshátíðin er í raun samfélagslegt verkefni á vegum sveitarfélagsins. Ungmenna- félagið Samherjar, kvenfélögin þrjú, björgunarsveitin, hesta- mannafélagið, Lionsklúbburinn og búsögusafnið standa að henni og skipta með sér verk- um. Við í Samherjum sjáum um uppsetningu hátíðarinnar með félögum í björgunarsveitinni og sjáum um veitingasöluna. Meira að segja börnin taka þátt. Þau eru hlauparar og hlaupa með smurt brauð á bakka úr eldhúsi og fram í veitingasöluna, standa vaktir með vinum og mömmum vina sinna og vinkvenna. Þarna eru líka ömmur sem fá mörg rokkstig. Þær eru kannski á vakt hjá kvenfélaginu en koma svo niður í eldhúsið til að baka pönnukökur því að þær eiga barnabörn í ungmenna- félaginu. Þetta er auðvitað álagstími í fjóra daga. En þetta eru skemmtilegir dagar. Ung- mennafélagsandinn svífur yfir hátíðinni og allir leggja sitt af mörkum. Við fáum ágóða af veitingasölunni og skiptum launum fyrir verk okkar á þess- ari fjögurra daga hátíð með björgunarsveitinni. Þarna fáum við annað eins ef ekki meira en sem nemur styrk sveitarfélags- ins til Ungmennafélagsins Sam- herja. Afraksturinn af vinnunni, sem allir inna af hendi, gerir félaginu kleift að bjóða upp á fjölbreytta tímatöflu og frábæra þjálfara,“ segir Berglind Krist- insdóttir, formaður Ungmenna- félagsins Samherja. Iðkendum fjölgar gríðarlega í Eyjafjarðarsveit Eftir að sveitarfélagið hóf að styrkja æfingar fólks í heimabyggð breyttust forsendur hjá Ungmennafélaginu Samherjum. Greinum fjölgaði og auðveldara varð að fá þjálfara. Formaður félagsins segir ungmennafélagsandann skila félaginu miklu. Þessar greinar eru í boði hjá Ungmenna- félaginu Samherjum • Badminton • Bandý • Borðtennis • Fótbolti • Frisbígolf • Frjálsar íþróttir • Júdó • Sund • Zumba

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.