Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.03.2018, Qupperneq 13

Skinfaxi - 01.03.2018, Qupperneq 13
 SKINFAXI 13 „Ég man ekki eftir öðrum eins uppgangi,” segir Sigurður Eiríksson, formaður Ungmenna- sambands Eyjafjarðar (UMSE), en hann þjálfar borðtennis hjá ungmennafélaginu. Í fyrrahaust mættu að meðaltali 12 á æfing- ar. Nú æfa 30 börn og ung- menni borðtennis undir hand- leiðslu Sigurðar. Það er of margt fyrir einn þjálfara og hann er búinn að fá aðstoðarmann. Sigurður tekur undir með Berglindi um það hvaða þættir hafi skilað fjölgun iðkenda. Hann bætir við að áhugi þjálf- ara skipti líka máli. „Það munar um að hafa þjálfara í sveitinni sem brennur fyrir grein sinni og virkjar aðra. Það hefur áhrif,” segir hann. Þá geti skipt máli að fólk í stjórnum félaga eigi sjálft börn því að þá skipuleggi það starfið betur. Þá telur Sigurður Félög verða að bjóða upp á íþróttir fyrir fullorðna að íþróttir fyrir fullorðna hafi líka skipt sköpum. „Fólk lagði sig fram um að bjóða upp á íþróttir fyrir full- orðna og að gera unglingum kleift að fara í tíma með þeim. Táningar þurfa nefnilega að hafa eitthvað fyrir stafni. Það er óvinnandi vegur að halda starfinu uppi ef ekki er opnað fyrir íþróttir fullorðinna,” segir hann. Sigurður segir gott íþrótta- starf hafa jákvæð áhrif á byggðaþróun. „Fólk horfir á þetta þegar það velur sér bú- setu. Hér hefur íbúum fjölgað, mikið í uppbyggingu og lóðir eru til reiðu. Þegar fólkinu fjölgar verður líka allt auð- veldara,” segir hann DUO. býður upp á alhliða grafíska hönnun fyrir fyrirtæki, félög og einstaklinga. Metnaður okkar liggur í að skapa vörumerki þínu sérstöðu með eftirtektarverðri framsetningu. Við leggjum áherslu á faglega og persónulega þjónustu. Ársskýrslur • Bæklingar • Auglýsingar • Félagsmerki duodot@duodot.design Kristín: 847 0516 \ Heiðdís: 867 2357 DUO. ER ÖFLUG GRAFÍSK HÖNNUNARSTOFA KÍKIÐ Á HEIMASÍÐUNA OKKAR: www.duodot.design Duodot ehf. Kaupvangsstræti 23, 600 Akureyri Kynntu þér nánar þjónustuna okkar

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.