Skinfaxi - 01.03.2018, Page 16
16 SKINFAXI
Samstarfssamningur Mosfellsbæjar og Ungmennafélags-
ins Aftureldingar er öllum aðgengilegur eins og opið
bókhald bæjarins. Í samningnum segir að markmiðið
sé að tryggja öflugt og fjölbreytt íþróttastarf í bænum undir
leiðsögn menntaðra og hæfra leiðbeinenda. Bærinn styður
fjárhagslegan rekstrar- og starfsgrundvöll félagsins, að því
er segir í samstarfssamningnum.
Í samningnum er tíundað með ítarlegum hætti hversu háar
fjárhæðir sveitarfélagið greiðir Aftureldingu og til hverra
hluta fjárhæðirnar eru hugsaðar.
Eftirfarandi er samantekt úr 2. grein samstarfssamningsins
og er lýsandi fyrir framlög Mosfellsbæjar til Aftureldingar.
• 12 milljónir: Framlagi varið til barna- og unglingastarfs.
Allar deildir fá 200 þúsund krónur en eftirstöðvum ráð-
stafað til einstakra deilda í hlutfalli við iðkendafjölda.
• 19,5 milljónir: Framlag í almennan og daglegan rekstur.
• 11 milljónir: Framlag til rekstrar meistaraflokka og til að
styðja við afreksstarf.
• Kort vegna líkamsræktar: Mosfellsbær lætur Aftureldingu
í té 120 árskort í líkamsræktarstöð. Markmiðið er að
tryggja sérhæfða styrktarþjálfun fyrir afreksíþróttafólk
félagsins.
• 1,2 milljónir: Framlag til að styðja almennt við afreks-
íþróttafólk í Aftureldingu vegna þátttöku á æfingum eða
keppni með landsliði innan sérsambands ÍSÍ. Framlagið er
líka hugsað til að veita þjálfurum og leiðbeinendum styrk
til að efla þá í starfi.
• Afnot af íþróttamannvirkjum: Afturelding fær afnot af
íþróttavöllum og sundlaugum í Mosfellsbæ.
Sjá ítarlegri upplýsingar:
www.mosfellsbaer.is/library/Skrar/.pdf-skjol/Samning-
ar-vid-ithrottafelog/Samningur_vid_Aftureldingu.pdf
Samstarf skilar
góðum árangri
MOSFELLSBÆR