Skinfaxi - 01.03.2018, Qupperneq 17
SKINFAXI 17
„Þetta var rosalega skemmtilegt. Við feng-
um bæði gagnlega fræðslu en líka félags-
skap annarra ungmenna, margra sem
ekkert þekktust áður og öll skemmtum við
okkur án áfengis eða annarra efna,“ segir
Kolbrún Lára Kjartansdóttir, formaður Ung-
mennaráðs UMFÍ.
Ungmennaráð UMFÍ bauð hópi ung-
menna á aldrinum 16–25 ára hvaðan-
æva af landinu í sólarhringsviðburð í
október. Ekki var skilyrði að viðkomandi
væri í ungmennaráði eða félagasamtökum.
Ungmennaráð UMFÍ hafði veg og vanda
af viðburðinum og leiddi gestina í gegnum
alls kyns leiki, ísbrjóta og bauð upp á
óvæntar uppákomur.
Viðburðurinn hófst á því að ungmennin
hittust í þjónustumiðstöð UMFÍ í Reykjavík.
Þar fengu þau kynfræðslu á vegum Ást-
ráðs, félags læknanema, og urðu líflegar
umræður um kynheilbrigði og kynlíf. Að
fræðslunni lokinni fór hópurinn í ratleik.
Leikurinn leiddi þau vítt og breitt en loka-
staðsetningin var að Hvanneyri í Borgar-
firði. Vitað var fyrirfram að þátttakendur
myndu gista á óþekktum stað því að í
fundarboði var þátttakendum sagt að hafa
með sér svefnpoka og snyrtivörur.
Kolbrún segir viðburðinn hafa verið
opinn öllum ungmennum sem vilja skemmta
sér á heilbrigðan hátt og kynnast öðru
ungu fólki.
„Við höfum alltaf haft skemmtilegar ferð-
ir, eins og þessa, opna fyrir alla svo að
sem flestir geti tekið þátt. Allir hafa gott
af því að hitta annað fólk. En markmiðið
er öðru fremur að búa til vettvang til teng-
slamyndunar og efla þátttakendur í því að
halda eigin viðburði fyrir ungt fólk í sinni
heimabyggð,“ segir Kolbrún og bendir
á að viðburðir Ungmennaráðs UMFÍ hafi
skilað miklum árangri, svo sem hvatt ungt
fólk til áhrifa og ungmennaráð til að halda
málþing um Reykjanesbraut og samgöngu-
mál. Það mál var einmitt ofarlega í hug-
um þátttakenda á ráðstefnunni Ungt fólk
og lýðræði sem Ungmennaráð UMFÍ hélt
í vor.
Rosalega skemmtileg óvissuferð
Kolbrún og flestir þátttakendurnir slógu á létta strengi fyrir utan gömlu heimavistina á Hvanneyri.
Ungmennaráð UMFÍ bauð í október ungu fólki upp á fræðslu- og í óvissuferð.
Frábært tækifæri til að hitta aðra og skemmta sér á heilbrigðan hátt,
segir formaður ráðsins.
Viltu vita meira
um ungmennaráð UMFÍ?
Ungmennaráð UMFÍ hefur um
nokkurra ára skeið staðið fyrir
ráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði.
Lestu meira um ráðstefnuna, sem
er ætluð ungu fólki sem vill láta
rödd sína heyrast.