Skinfaxi - 01.03.2018, Blaðsíða 18
18 SKINFAXI
Landsmót UMFÍ hafa verið haldin með nokkuð
reglulegu árabili í meira en hundrað ár. Mótið
var jafnan stærðarinnar viðburður í íþróttalífi
þjóðarinnar. En mikið vatn hefur runnið til sjávar
á heilli öld. Gamla formið þótti tímanna tákn og
var lagt til hliðar. Landsmótið, sem haldið var á
Sauðárkróki um miðjan júlí, var það fyrsta sem
UMFÍ heldur með algjörlega breyttu sniði.
En hvernig tókst til?
NÝJA LANDSMÓTIÐ
TÓKST VEL
Á MEÐAL NÝJUNGA
• Mótið var opið öllum 18 ára og eldri
sem hafa gaman af því að hreyfa sig.
• Ekki var nauðsynlegt að vera í ungmenna-
eða íþróttafélagi.
• Sambandsaðilar UMFÍ fengu engin hlunnindi
fyrir að senda þátttakendur á mótið.
• Engin áhersla var á Landsmótsmet.
• Hægt var að velja úr um 40 mismunandi
íþróttagreinum.
„Landsmótið tókst vel. Við eig-
um enn eftir að vinna úr ýms-
um upplýsingum sem hefur ver-
ið aflað úr skráningum á mót-
ið, könnunum á meðal þátttak-
enda og fleiru. Ég legg áherslu
á að mótið í sumar var í veru-
lega breyttu formi. Það var orð-
ið alveg nauðsynlegt að fella
mótin betur að nútíma kröfum
og þörfum félaga og sam-
félagsins eins og það er orðið,“
segir Haukur Valtýsson, for-
maður UMFÍ.
Hann segir ennfremur að
þátttakan hafi verið umfram
áætlanir og hún náði langt út
fyrir raðir iðkenda í aðildar-
félögum UMFÍ.
„Ég tel að Landsmótið eigi
framtíð fyrir sér. Það á að geta
orðið kjölfesta sem íþróttavið-
burður og lýðheilsu hátíð fyrir
almenning ekki síð ur en íþrótta-
fólk. Það er mikil vægt að við
ungmennafélag ar tökum sam-
an höndum um að kynna og
efla þessi mót og markmið
þeirra. Ég hvet til þess að öll
hreyfing okkar standi saman
að slíku verkefni. Það kemur
samfélaginu til góða.”
Haukur segir erfitt að undir -
búa mót með nýju sniði og
langan tíma þurfi til að kynna
fyrirkomulagið enda hafi fólk
ekki þekkt sumar greinarnar,
þær hafi einfaldlega ekki sést
áður hér á landi. Mót eins og
þetta vinni á enda ljóst af und -
irtektunum að fólk hafi skemmt
sér og því fundist gaman að
taka þátt í íþróttaviðburðum
með fjölskyldu og vinum.
„Þetta er verkefni sem mun
taka nokkur ár að koma til
skila í samfélaginu og því er of
snemmt að draga afdráttar -
lausar ályktanir út frá þessu
eina móti um framtíð þess.
Niðurstöður kannana, eins og
Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ:
Landsmótið er lýðheilsuhátíð
Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ.