Skinfaxi - 01.03.2018, Blaðsíða 19
SKINFAXI 19
H jónin Eyjólfur og Ingibjörg og Ragn-
heiður dóttir þeirra reyna að fara saman
í eina hjólakeppni á ári. Ragnheiður, sem er
27 ára, er búsett erlendis og því er vel til fallið
að styrkja fjölskylduböndin með skemmtilegri
samveru á borð við íþróttamót. Þeim finnst
það frábær hugmynd að blanda saman
íþróttum og útilegu eins og á Landsmótinu.
Þegar þau voru að leita að keppni til að
taka þátt í á þessu ári ráku þau augun
í götuhjólreiðar á Landsmótinu og ákváðu
að skella sér í þær. Þau náðu fínum árangri.
Þau Ragnheiður og Eyjólfur lentu í öðru sæti,
hvort í sínum flokki, en Ingibjörg í þriðja sæti í
sínum flokki. Ingibjörgu taldist til tekna að hún
gleymdi hjólaskónum heima og hjólaði því 65
kílómetra á fjallahjóli og í strigaskóm.
I ngibjörgu varð ekki meint af áreynslunni
þótt vissulega hafi hún orðið þreytt.
„Það er sagt að það sé erfiðara að hjóla
þessa vegalengd á fjallahjóli, mun þyngra.
Þess vegna voru þessir 65 kílómetrar eins og
80 kílómetrar fyrir mig,“ sagði hún.
þeirra sem hafa verið gerðar á
ráðstefnunni Ungt fólk og lýð-
ræði, benda til að fólk vilji að
ungmennafélögin standi fyrir
fleiri verkefnum sem hæfa ungu
fólki, ekki eingöngu þeim sem
eru keppnis íþróttir eða afreks-
íþróttir, held ur líka greinum
sem höfða til sem flestra. Þau
vilja ekki síð ur viðburði fyrir
þá sem horfa á ánægjuna og
leikinn og félagsskapinn af
því að stunda íþróttina frekar
en að keppa. Landsmótið var
svar við þeim óskum,” segir
Haukur.
Hjólaði 65 kílómetra á fjallahjóli
og í strigaskóm
Hjónin Eyjólfur og Ingibjörg ásamt Ingibjörgu dóttur þeirra.