Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2018, Blaðsíða 23

Skinfaxi - 01.03.2018, Blaðsíða 23
 SKINFAXI 23 Skógræktarverkefni ungmennafélaganna var í þremur áföng- um. Hinn fyrsti var samhliða stofnun ungmennafélaganna, ann - ar upp úr 1950 og hinn þriðji í kringum 1990. Í upphafi var stefnt á að klæða landið skógi. Eftir því sem á leið varð ljóst að það væri ekki raunsætt. Í kringum 1990 snerist gróðursetn - ing ungmennafélaganna um að búa til skjól við íþróttamann- virki fremur en að rækta samfellda skógarreiti. Leit að reitum Ekki eru miklar heimildir til um skógarreitina. Þeir hafa aðeins einu sinni áður verið kortlagðir. Það gerði Björn B. Jónsson, skógarverkfræðingur og fyrrverandi formaður UMFÍ, mjög vel árið 1992. Björn mældi þá reiti sem hann fékk vitneskju um og voru enn á snærum ungmennafélaganna. Hann fann 110 reiti sem hann tók út en frétti af þremur öðrum sem hann komst ekki yfir að kanna. Í úttekt Björns voru 57 skýrt afmarkaðir skógarreitir, 43 sinnum hafði verið gróðursett við félagsheimili og/eða við íþrótta mannvirki og níu svæði voru þar sem gróð- ursett hafði ver ið á golfvöllum. Sigríður leitaði fanga hjá Birni. En gögnin voru vistuð í takt við tímann og ekki á stafrænu formi. Myndir þurfti því meðal Skógarreitir í sýndarveruleika. Sigríður Hrefna tók 360 gráðu myndir af skógarreitunum á ferð sinni um landið. Hún sýndi myndirnar á Fagráðstefnu skógræktarinnar í ráðstefnu- og menningarhúsinu Hofi á Akureyri síðastliðið vor. Þar gátu gestir skoðað skógarlundina og ferðast um þá með sýndarveruleikagleraugum. Hún segir að næstu skref séu að gera vefsíðu um skógarreitina og birta þar myndir og margvíslegan fróðleik um þá sem hún hefur aflað sér. Hér má sjá Sigríði lengst til vinstri ásamt þeim Friðrik Aspelund og Hreini Óskarssyni sem er að skoða skógrækt ungmennafélaganna með sýndarveruleika- gleraugum á Akureyri. annars að vinna með öðrum hætti en tíðkast nú. Til viðbótar hafði Björn gert handteiknaðar myndir af skógarreitunum og fært staðsetningu þeirra inn á ljósritað kort af Íslandi. Í leit Sigríðar kom í ljós að sumir reitanna hafa verið opnir almenn- ingi og eru í umsjón skógræktarfélags eða sveitarfélags. Marg ir þeirra eru líka illfærir og óhirtir. Hún nefnir skógarreit sem hún hafi leitað við Gilsbakka í Hvítársíðu í Borgarfirði. „Ég hafði skoðað loftmyndir af svæðinu en fann ekki greni- skógarreitinn sem Björn fann. Ég þurfti að keyra svo lítinn spotta og fann svo reitinn inni í birkiskógi. Þar fann ég líka baunatré sem er algengara í görðum en ekki í skógi. Mér leið því svolítið eins og Indiana Jones, að leita að skógarreitum,“ segir Sigríður sem gat staðsett 95 af þeim 110 sem Björn fann. Tveir reitir voru horfnir. Af þeim sem eftir stóðu voru samfelldir skógarlundir í 53. Í hinum 40 fólst ræktunin aðallega í skjól- beltum. Vestfirðirnir eru enn eftir. „Björn fór ekki vestur og ég á það eftir. Eftir að útttekt minni lauk heyrði ég um reiti í Dýrafirði og víðar á Vestfjörðum. Ég er viss um að finna um 15 reiti og kannski fleiri í viðbót. Það væri mjög gaman ef einhverjir gætu opnað þá sem áningarstaði fyrir almenning,” segir Sigríður.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.