Skinfaxi - 01.03.2018, Page 25
SKINFAXI 25
Mótsgestir voru almennt mjög ánægðir á Ungl-
ingalandsmóti UMFÍ. Margrét Brynjólfsdóttir,
sjö barna móðir frá Patreksfirði, var ein þeirra:
„Við höfum átt þrjú börn á mótinu á hverju
ári. Verslunarmannahelgin hefur þess
vegna verið frátekin hjá okkur fyrir Ungl-
ingalandsmótið í nokkur ár,“ segir Margrét.
Elsta barn hennar er 21 árs og það yngsta
4 ára. Margrét gerir því ráð fyrir að mæta
á Unglingalandsmót ansi oft í viðbót.
Margrét segir Unglingalandsmót UMFÍ
jákvætt fyrir alla fjölskylduna. Þau fari alltaf öll
saman. Fjölskyldan er samt ekki mikið fyrir úti-
legur og fær því inni hjá fjölskyldu og vinum þar
sem mótið er hverju sinni. Í Þorlákshöfn gisti
Margrét og fjölskyldan öll hjá bróður hennar
sem býr þar.
Margrét æfði sjálf frjálsar á sínum yngri
árum og hafa börnin tekið við keflinu auk
þess að bæta við sig greinum. Margréti
finnst ekki síst gaman að mæta á Ungl-
ingalandsmót UMFÍ þar sem það sé líkast
því að mæta á ættarmót eða nemendamót.
„Á mótið mæta margir sem ég æfði með
og keppti við í frjálsum í gamla daga. Þess
vegna er þetta eins og ættarmót fyrir mig og
fjölskylduna,“ segir hún.
Eins og ættarmót fyrir mig og fjölskylduna