Skinfaxi - 01.03.2018, Qupperneq 32
32 SKINFAXI
S
tór hópur íþróttakvenna steig fram í byrjun árs og
greindi frá kynbundnu ofbeldi gegn sér í gegnum árin.
Gerendur voru bæði þjálfarar og annað íþróttafólk.
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra,
greip boltann á lofti og setti á laggirnar starfshóp um gerð
aðgerðaáætlunar um verklag þegar kynbundin mál og ofbeldis-
mál af því tagi koma upp innan íþrótta- og æskulýðshreyfingar-
innar með þeim hætti sem konurnar lýstu. Umfangið stækkaði
nokkuð í meðförum hópsins. Auður Inga Þorsteinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri UMFÍ, var fulltrúi ungmennafélagshreyfingarinnar í
hópnum. Aðrir í starfshópnum voru starfsmenn mennta- og menn-
ingarmálaráðuneytis, fulltrúar íþróttakvenna og Lárus Blöndal,
forseti ÍSÍ.
Vinnu samstarfshópsins lauk í sumar. Ein af tillögum hópsins
var að stofnað verði tímabundið til starfs samskiptaráðgjafa
íþrótta- og æskulýðsstarfs. Umsögn um áform þess efnis var lögð
fram í september. Um leið var lagt til að óheimilt verði að ráða
einstaklinga til starfa hjá íþróttafélögum eða þiggja framlag
þeirra sem sjálfboðaliða hafi þeir hlotið refsidóma fyrir kynferðis-
brot. Í umsögn UMFÍ um málið var þessu fagnað en bent á að
Æskulýðsvettvangurinn, sem UMFÍ er samstarfsaðili að, gangi
lengra. Þar á það sama við um þá sem hafa hlotið refsidóma
fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni.
ÖRYGGI IÐKENDA
SETT Í ÖNDVEGI
Samstarfshópur, sem var settur saman í tengslum
við #MeToo-byltinguna, hefur lokið störfum. Lilja
Alfreðsdóttir menntamálaráðherra segir vinnu
hópsins eiga að ná til íþrótta- og æskulýðsstarfs
og eineltis- og jafnréttismála.
UMFÍ LEGGUR
SITT AF MÖRKUM
Stjórnendur innan UMFÍ samþykktu á sambandsráðsfundi
í janúar 2018 að bregðast við hrikalegum frásögnum
íþróttakvenna og leggja sitt af mörkum í baráttunni gegn
hvers kyns ofbeldi innan ungmennafélagshreyfingarinnar.
Fundinn sátu formenn sambandsaðila af öllu landinu og
náði samþykkt þeirra til rúmlega 340 félaga innan UMFÍ
um allt land og rúmlega 160.000 félagsmanna þeirra.
Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ, skoraði á alla formenn
að fyrirbyggja ofbeldi og áreitni innan félaga sinna og
hvatti fólk til að leita til þjónustumiðstöðvar UMFÍ eftir
aðstoð og ráðgjöf.
Haft var eftir Hauki í yfirlýsingu, sem UMFÍ sendi frá sér,
að það hryggði sig hversu lengi margar konur, sem fyrir
ofbeldinu urðu, hafi borið sögurnar innra með sér. „Við
viljum vera til fyrirmyndar og líðum ekki óæskilega hegðun
innan hreyfingarinnar sem felur í sér brot gegn fólki og
eyðileggur út frá sér. Við hjá UMFÍ munum leggja lóð
okkar á vogarskálarnar til að útrýma þeirri neikvæðu og
eyðileggjandi hegðun sem þeir hugrökku einstaklingar
greina frá sem nú hafa stigið fram,“ sagði hann.