Skinfaxi - 01.03.2018, Qupperneq 34
34 SKINFAXI
F élagasamtök á Íslandi, sem starfa í
almanna þágu, bæta samfélag okkar á
margan hátt. Líkt og ungmennafélögin,
sem eiga sér markmið um „Ræktun lýðs og
lands“, vinna önnur almannaheillafélög að því
að auðga líf fólks, dýra eða vernda nátt úruna
án hagnað arsjónarmiða. Í þessum félögum
starfa sjálfboðaliðar sem vinna á óeigingjarnan
hátt og halda uppi metnaðarfullu starfi árið um
kring. Slíkt sjálfboðastarf er reyndar mannrækt-
andi í sjálfu sér og hafa fjölmargar rannsóknir
sýnt að þátttaka í sjálfboðaverkefnum eykur
lífsgæði sjálfboðaliðanna sjálfra.
Bætum heiminn
Almannaheillafélög í landinu eru fjölmörg og
eru samtals með tugi þúsunda félagsmanna sem
þjóna margfalt fleirum. Sum eru stór, eiga sér
langa sögu og eru vel skipulögð og önnur eru
lítil grasrótarsamtök fólks sem hefur fengið góða
hugmynd um að bæta heiminn. Saman eru
þessi félög öflug breiðfylking sem skiptir sam-
félag okkar miklu máli. Þessi breið fylking er
gjarnan kölluð þriðji geirinn, til aðgreiningar
frá tveimur öðrum mikilvæg um geirum: hinum
opinbera geira, með rekstri ríkis og sveitar-
félaga, annars vegar og fyrirtækjageiran-
um hins vegar. Almannaheill eru sam-
starfsvettvangur þriðja geirans, félaga
og sjálfs eignarstofnana á Íslandi sem
vinna að almannaheill án hagnaðarsjón-
armiða. Markmiðið er að stuðla að fag-
mennsku og trúverðugleika slíkra félaga
og bæta starfsskilyrði þeirra. Almanna-
heill er vettvangur þar sem
félagasamtök læra hvert af
öðru og þar sem færi gefst til
að eiga samtal og stilla af
kúrsinn miðað við breyttar
áherslur í heiminum og
alþjóðlega viðtekin gildi.
Dæmi um verkefni
Almannaheillar eru siða-
reglur fyrir félagasamtök, nám fyrir stjórnendur
félagasamtaka í Háskólanum í Reykjavík, Lýsa
(áður Fundur fólksins), árleg lýðræðishátíð sem
Menningarfélag Akureyrar hefur skipulagt og
Norræna húsið þar á undan. Nú eru það
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Þjóðir
heims, sveitarfélög, fyrir tæki og félagasamtök
geta á næstunni notað þau til að spegla sín
eigin markmið og samþykktir í og stillt áttavit-
ann í átt að sautján markmiðum um betri heim.
Almannaheill vilja styðja félagasamtök í þeirri
vinnu.
Heildarlög vantar
Jafn undarlega sem það kann að hljóma þá
eru á Íslandi ekki til nein heildarlög um félaga-
samtök, eins og til eru um annars konar félög
á borð við hlutafélög og sameignarfélög. Þetta
hamlar starfi almannaheillafélaga. Þess vegna
eru aðildarfélög Almannaheilla sammála um að
kalla þurfi eftir lagalegri umgjörð um félagafor-
mið sem allra fyrst. Slík lög hafa verið lengi í
undirbúningi og hefur núverandi ráðherra sem
fer með félagarétt, það er ferðamála-, iðnaðar-
og nýsköpunarráðherra, boðað að hún muni
leggja slíkt frumvarp fram í vetur. Þessu
fagnar Almannaheill.
En af hverju þurfum við lag aramma um
félagasamtök til almannaheilla? Þegar
við, almenningur, fyrirtæki og yfir völd,
styðjum félagasamtök til góðra verka
viljum við geta treyst þeim. Við viljum að
fólk ið eða málefnið sem félagasam-
tökin starfa fyrir njóti fag legrar
hjálpar, að félagasam-
tökin taki vandaðar
ákvarðanir, fari vel með
fjármagn og komi í veg
fyrir hagsmunaárekstra.
Við viljum ekki að fjár-
málaóreiða eða eigin-
hagsmunapot í félaga-
Ketill Berg Magnússon, formaður
Almannaheillar, samtaka þriðja geirans.
Fagmennska og trúverðugleiki
félagasamtaka
Á þessu ári halda Almannaheill – samtök þriðja geirans upp á
10 ára afmæli sitt. Að því tilefni er vert að staldra við og
spyrja til hvers við þurfum slík samtök.