Skinfaxi - 01.03.2018, Side 35
SKINFAXI 35
samtökunum skaði málstaðinn sem við styðjum. Því miður er alltaf
hætta á að það gerist í félagasamtökum eins og annars staðar
þar sem peningar og hagsmunir eru í húfi.
Aukum trúverðugleika
Kjarninn í þeim frumvarpsdrögum sem liggja á borði ráðherra
er fagleg viðmið fyrir almannaheillafélög um lýðræðislega
stjórnarhætti og vandaða meðferð fjár. Slík viðmið auka trúverðug-
leika gagnvart félagsmönnum, þeim sem njóta þjónustu félag-
anna, þeim sem styðja við félögin og þeim sem fela félögunum
aukin verkefni, s.s. ríki eða sveitarfélög. Gert er ráð fyrir að
félög, sem hafa fjárhagslega starfsemi, geti skráð sig sérstaklega
hjáfyrirtækjaskrá sem félög til almannaheillar og fái þá viðbót
við nafn sitt .fta (líkt og hlutafélög fá endinguna .hf). Slík skráning
er hins vegar valkvæð og lítil félög, sem höndla ekki með mikla
fjármuni, geta starfað áfram eins og hingað til.
Þörfin fyrir samtalsvettvang félagasamtaka á Íslandi er mikil.
Saman getum við hlúð að hugsjóninni um að einstaklingar geti
átt frumkvæði að því að bæta samfélag okkar og stofnað til
þess félög sem eru ekki rekin í hagnaðarskyni. Áherslan á fag-
legt starf og vönduð vinnubrögð á við um stór og lítil félög.
Almannaheill hefur starfað að þessari hugsjón í tíu ár og vill
eflast enn frekar í því hlutverki á komandi árum.
Ketill Berg Magnússon,
formaður Almannaheillar, samtaka þriðja geirans
Frá ráðstefnunni Lýsa sem fram fór á Akureyri í byrjun september. Þetta var tveggja daga hátíð sem haldin var fjórða árið í röð.
Þarna hittust almenningur, stjórnmálafólk og forsvarsfólks félagasamtaka og ræddu ýmis mál sem brunnu á þeim.