Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2018, Blaðsíða 38

Skinfaxi - 01.03.2018, Blaðsíða 38
38 SKINFAXI Hver er staðan á Íslandi? Á Íslandi er talið að um 10% íbúa séu innflytjendur en saman- lagt eru fyrsta og önnur kynslóð innflytjenda 12% heildaríbúa á Íslandi. Flestir innflytjendur búa á höfuðborgarsvæðinu, því næst koma Vestfirðir og Suðurnesin. Innflytjandi telst einstaklingur sem er fæddur erlendis og á foreldra sem eru einnig fæddir erlendis, svo og báðir afar hans og báðar ömmur. Önnur kynslóð innflytj- enda er einstaklingar sem fæddir eru á Íslandi og eiga foreldra sem báðir eru innflytjendur (Wikipedia 2018). Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar, sem Rannsókn og greining lagði fyrir alla nemendur í 8.–10. bekk á Íslandi árið 2016, stunda nær aldrei 56% barna og ungmenna íþróttir þar sem engin íslenska er töluð á heimilinu og 46% barna og ungmenna stunda nær aldrei íþróttir þar sem íslenska er töluð ásamt öðru tungumáli. Niðurstöð- urnar eru þó ekki einungis neikvæðar. Mjög jafnt hlutfall barna og ungmenna stundar íþróttir 1–3 sinnum í viku, hvort sem eingöngu íslenska er töluð á heimilinu, hvort íslenska ásamt öðru tungumáli er töluð eða hvort einungis annað tungumál sé talað. Verkfæri fyrir íþróttahreyfinguna Nú í september kom út upplýsingabæklingur en markmiðið með honum er að auka þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna í skipulögðu íþróttastarfi. Markhópur efnisins er foreldr- ar af erlendum uppruna. Í bæklingnum er að finna hagnýtar upp- lýsingar um starfsemi íþrótta- og ungmennafélaga landsins. Nefna má upplýsingar um æfingagjöld íþróttafélaga, frístundastyrki, mikilvægi þátttöku foreldra í íþróttastarfi og kosti þess að hreyfa sig í skipulögðu starfi. Bæklingurinn er gefinn út á sex tungumálum, þ.e. á íslensku, ensku, pólsku, tælensku, litháísku og filippseysku. Hann er sam- starfsverkefni UMFÍ og ÍSÍ. Styrkir til félaga UMFÍ og ÍSÍ auglýstu fimm styrki til félaga til þess að standa fyrir verkefni sem hvetur börn og ungmenni af erlendum uppruna til þátttöku í íþróttastarfi. Félögin, sem hlutu styrki, eru Héraðssam- band Snæfellsness og Hnappadalssýslu, ÍBV íþróttafélag, Íþrótta- bandalag Akraness, Knattspyrnufélagið Valur og taekwondodeild Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags. UMFÍ og ÍSÍ munu taka saman gögn frá félögunum sem hlutu styrk og deila reynslunni áfram til annarra félaga í landinu. Saman getur íþróttahreyfingin hjálpast að, miðlað reynslu og þekkingu og gert gott starf enn betra. HÖFUM ALLA MEÐ! UMFÍ ásamt ÍSÍ ýtti í haust úr vör verkefninu Vertu með. Markmið þess er að ná til foreldra barna af erlendum uppruna og fjölga börnum í íþróttum í skipulögðu íþróttastarfi. Með þátttökunni kynnist barnið nýjum vinum, börnum og ungmennum í skipulögðu starfi, því gengur betur í námi og bæði foreldrar og börnin eignast stærra félagslegt stuðningsnet.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.