Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.03.2018, Qupperneq 41

Skinfaxi - 01.03.2018, Qupperneq 41
 SKINFAXI 41 Í kjölfar bankahrunsins fóru mörg fyrirtæki sömu leið eða lentu í alvarlegum kröggum. Þetta kom íþróttafélögum illa. Sigurjón Sigurðs- son, formaður aðalstjórnar HK, segir 80% fyrirtækja, sem studdu við félagið, hafa horfið í sögubækur eða lent í vandræðum sem ollu því að þau gátu ekki lengur stutt við félagið. „Hrunið hafði alveg jafn mikil áhrif á okkur og aðra. Þegar það skall á vorum við með samninga við leikmenn, þar af sex samninga við erlenda leikmenn í erlendri mynt. Þegar gengi íslensku krónunnar hafði fallið mikið urðum við að endursemja við leikmenn og greiða þeim hluta af samningum. Í apríl 2009 báðum við svo deildir HK um að koma sér út úr samningunum og fórum að vinna í því. Það varð algjör forsendubrestur á öllu í rekstri félagsins og leikmenn höfðu skilning á því,“ segir Sigurjón. Á meðal stærstu styrktarfyrirtækja HK „Það þrengdi mjög að hjá félaginu og öllum deildum og því tóku deildirnar og félagið þetta alfarið á sig,“ segir Einar Haraldsson, for- maður og framkvæmdastjóri Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags, um afleiðingar þess að svo dró saman í efnahagslífinu að stuðnings- aðilar félagsins héldu að sér höndum eða lögðu upp laupana. Einar segir íþróttafélagið hafa gert allt sem í valdi þess stóð til að halda uppi sama þjónustustigi og áður. Horft var sérstaklega til þess að láta samdráttinn ekki bitna á börnunum og ungmennum. Þetta tókst með því að sækja í sjóði sem félagið hafði safnað í. Þetta hafi hins vegar verið erfitt þar sem auk niðursveiflu í efnahagslífinu hafi var Byr sparisjóður sem fór á hliðina með öðrum fjármálafyrirtækjum og rann snemma inn í Íslandsbanka. Sigurjón segir fyrirhyggju stjórnar HK í góðærinu svokallaða hafa nýst þegar efnahagslífið tók dýfu. Félagið sat á tugum milljóna króna sem voru nýttar að fullu þegar gaf á bátinn og styrktaraðilarnir hurfu í einu vetfangi. „Við fengum ekki fyrirgreiðslu í banka eða hjá neinum öðrum. Bankarnir gátu það ekki og sveitarfélagið ekki heldur. Við nýttum allan varasjóðinn okkar,” segir Sigurjón og bætir við að næstum 30 ára seta í stóli formanns og stjórn hafi kennt honum að aðalstjórn HK hafi þegar vel gekk ákveðið að safna í sjóð fyrir mögru árin. „Það er hlutverk aðalstjórnar fjölgreinafélags eins og HK að bera ábyrgð á rekstrinum. Ég sagði alltaf að við yrðum að passa okkur, við værum ekki frjáls ef við myndum lenda í fjárhagsvandræðum. Þess vegna fórum við að leggja til hliðar. HK var svo algjörlega skuldlaust þegar brotsjórinn gekk yfir og ekki með nein langtímalán eða aðrar skuldbindingar gagnvart fjármálastofnunum.“ Sigurjón mælir með því að íþróttafélög sníði sér ávallt stakk eftir vexti og stofni ekki til neinna verkefna nema hafa áður tryggt fjár- muni til þeirra. Annað geti boðið hættunni heim. sveitarfélagið og íbúar þess glímt við afleiðingar þess að varnarliðið hvarf af landi brott árið 2006. Gott dæmi um afleiðingar samdráttarins var jólablaðið sem Keflavík gefur út á hverju ári. Í blaðinu segir um rekstur ársins 2008 að tekjur frá stuðningsaðilum hafi minnkað og dregið úr fjármagni frá öðrum. Viðbrögðin fólust í niðurskurði, lækkun launa og með því að senda erlenda leikmenn heim. Ekki var skorið niður í starfi yngri flokka. Tekið er fram í pistli badmintondeildar Keflavíkur í jólablaðinu árið 2008 að stjórnarmenn vilji gleyma árinu sem allra fyrst. Árið hafi einkennst af samdrætti á flestum sviðum líkt og hjá öðrum deildum. Þjálfarinn yfirgaf deildina og iðkendum fækkaði. Í þessu tiltekna blaði og þeim sem á eftir fylgdu segir að undravert sé hversu vel sjálfboðaliðum í stjórnum deilda hafi tekist vel að bregðast við breyttu rekstrarumhverfi. Aðalstjórn leggi sig fram um að halda fjármálum félagsins í góðu horfi og reyni að hindra að eytt sé umfram tekjur. Útgáfa jólablaðsins hefur ávallt verið fjármögnuð með sölu auglýs- inga. Aðalstjórn Keflavíkur ákvað haustið 2008 að sækja ekki aug- lýsingar í jólablaðið heldur bera kostnaðinn sjálf. Það var gert í tvö ár. Sigurjón Sigurðsson, formaður aðalstjórnar HK í Kópavogi. Fyrirhyggja fyrri ára kom félaginu vel „Við fengum ekki fyrirgreiðslu í banka eða hjá neinum öðrum. Bankarnir gátu það ekki og sveitarfélagið ekki heldur. Við nýttum allan varasjóðinn okkar.” Keflvíkingar tóku hrunið á sig „Aðalstjórn Keflavíkur ákvað haustið 2008 að sækja ekki auglýsingar í jólablaðið heldur bera kostnaðinn sjálf. Það var gert í tvö ár.” Einar Haraldsson, formaður og framkvæmdastjóri Keflavíkur.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.