Mosfellingur - 12.01.2023, Síða 10

Mosfellingur - 12.01.2023, Síða 10
 - Fréttir úr bæjarlífinu10 Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Á aðventunni var haldin jólasamvera fyrir íbúa og aðstandendur þeirra á hjúkrun- arsambýlinu Hlein, sem staðsett er við Reykjalund. Þetta var skemmtilegt og vel heppnað kvöld í alla staði. Ellý Björnsdóttir matráður Hleinar töfraði fram frábærar veitingar, Oddný Þórarinsdóttir og Hekla Karen Alexanders- dóttir, starfsmenn Hleinar, spiluðu jólatón- list og haldið var jólabingó með frábærum vinningum. Það var virklega gaman hversu margir sáu sér fært að mæta og glatt var á hjalla. Þetta er sannarlega samvera sem skilur mikið eftir sig. Starfsfólk og íbúar Hleinar halda glöð inn í nýja árið. Líf og fjör á jólabingói Hleinar Gönguskíðaæði á Hafravatni Gönguskíðabraut var troðin á Hafravatni þann 5. janúar og hefur notið gríðarlegra vinsælda. Mosfellingurinn Magne Kvam á heiðurinn af framtakinu og heldur úti einkaframtakinu Sporinu. Hægt er að fylgjast með ævintýrunum þar á Facebook og Instagram. Magne er einlægur áhugamaður um að- gengilega útivist allt árið um kring. Vegna fjölda fyrirspurna úr heimbænum ákvað Sporið að gefa Mosfellingum tvöfalt skíða- spor á Hafravatni. Sporið hentar vel fyrir byrjendur og er tæpir 5 km. Talið er að mörg hundruð manns hafi nýtt sér þetta framtak strax fyrsta daginn og greinilegt að möguleikar til útivistar á Hafravatni eru miklir. Eitthvað hefur vind- ur og hláka komist í sporið síðustu daga en spáð er frosti næstu vikuna. Hjónin Magne Kvam og Ásta Briem reka einnig fyrirtækið Icebike Adventures. vinsæll hringur í vetrarríki Draumur lifnar við. Hvað átti síðan að taka við? Spyrja Myrkrahöfðingjarnir í Myrkva með glænýju lagi í upphafi nýs árs. Myrkvi var áður einstaklingsverkefni Magnúsar Thorlacius en hann hefur nú fengið til liðs við sig Ingva Rafn Garðarsson Holm félaga sinn úr tríóinu Vio. Draumabyrjun er fyrsta lagið sem þeir senda frá sér saman undir Myrkva-nafn- inu en það fjallar einmitt um upphafið á tónlistarferli þeirra. Lagið er aðgengilegt á Spotify og Youtube en Myrkvi heldur tónleika á KEX Hostel þann 4. febrúar. Ingvi Rafn til liðs við Magnús Thorlacius • Draumabyrjun Myrkvi með Drauma- byrjun - nýtt lag myrkvi

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.