Mosfellingur - 12.01.2023, Síða 25
Kynning á
íþróttafólki
sem tilnefnt
er og afrekum
þess á árinu
Kosning fer fram á mos.is
Átta konur og tíu karlar hafa verið tilnefnd af
íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar
til íþróttafólks Mosfellsbæjar 2022.
Eins og áður gefst bæjarbúum kostur á,
ásamt íþrótta- og tómstundanefnd
Mosfellsbæjar, að kjósa íþróttafólk ársins.
Netkosning stendur yfir frá 12. janúar
til og með 16. janúar 2023.
Velja skal í 1., 2. og 3. sæti í kvenna-
og karlaflokki. Kosningin er ekki gild
nema valið sé í öll þrjú sætin.
ÍTM mun síðan velja milli þeirra
sem tilnefnd eru og styðjast
við niðurstöðu vefkosningarinnar.
Tilkynnt verður um valið þann 19. janúar.
Hafþór hefur verið virkur í mótum á árinu og náð
frábærum árangri bæði persónulega og með liði
sínu ÍR-PLS.
Hafþór varð á árinu Íslandsmeistari einstaklinga,
Reykjavíkurmeistari og lenti í 2. sæti á Reykjavík
International Games.
Í deildinni átti Hafþór hæsta leikinn í karlaflokki
með 290 pinna, hann átti hæsta meðaltal 219,33
ásamt því að vera fellukóngur með að meðaltali
6,64 fellur í leik. ÍR-PLS urðu bikar- og deildar-
meistarar með hæsta meðaltal í deildinni ásamt
því að hljóta stjörnuskjöldinn
Hafþór Harðarson
keila
Wiktor er aðeins 17 ára að aldri en er þegar með-
al sterkustu keppenda Íslands í báðum greinum
Taekwondo, poomsae (formum) og sparring (bar-
daga) en hann er í landsliðinu í bardaga. Það er
sjaldgæft að keppendur komnir í unglingaflokk í
taekwondo séu jafn framarlega í báðum hlutum
íþróttarinnar, bardaga og poomsae, en Wiktor er
einn þeirra hæfileikaríku einstaklinga sem hefur
afrekað það.
Wiktor tók þátt á Norðurlandamóti í sumar en
komst ekki á pall þótt hann hafi staðið sig mjög
vel. Hann er jafnframt margfaldur Íslands- og
bikarmeistari í báðum greinum taekwondo.
Wiktor var nýlega valinn taekwondomaður
Aftureldingar 2022.
Wiktor Sobczynski
taekwondo
Emil Þór keppir í akstri í rallycrossi á vegum AÍH
og Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar.
Emil varð Íslandsmeistari annað árið í röð, á
þessu ári í flokki 1400 cc bíla en í flokki unglinga
í fyrra. Íslandsmeistaramótaröðin taldi 4 keppnir
og vann hann þær allar með yfirburðum. Hver
keppni er fjórar lotur og af 16 lotum sumarsins
varð hann 15 sinnum í 1. sæti. Hann varð einnig
bikarmeistari í sínum flokki, 1400 cc vélarstærð,
í 2ja daga bikarmóti í haust, og vann hann þar 7
af 8 lotum.
Í öllum keppnum ársins hefur hann verið með
bestu brautartímana í tímatökum í sínum flokki.
Emil er frábær fyrirmynd, bæði inni á braut sem
utan brautar.
Emil Þór Reynisson
rallycross
Sebastían bjó í Mosfellsbæ og stundaði íþróttir,
þar á meðal blak, sem barn í Aftureldingu.
Hann kom aftur til félagsins þegar karlalið
Aftureldingar fór að spila í úrvalsdeild og hefur
verið lykilmaður, auk þess sem hann hefur verið
fyrirliði liðsins undanfarin ár.
Sebastían er ákaflega hollur sínu félagi og er
alltaf hægt að treyst á hann.
Á síðasta leikári náði hann þeim árangri að vera
valinn í æfingahóp A-landsliðs karla. Sebastían
er einstaklega geðgóður maður og hefur lagt
mikið á sig fyrir íþrótt sína samhliða námi sínu og
vinnu.
Sebastían Sævarsson Meyer
blak