Mosfellingur - 09.02.2023, Blaðsíða 16

Mosfellingur - 09.02.2023, Blaðsíða 16
 - www.mosfellingur.is16 Bókanir : helgadogg@helgadogg.is FERMINGARMYNDATAKA helgadogg.is Myndatakan getur far ið f ram út i eða í s túdíó i . Með f jö lskyldunni , ömmu og afa , ja fnvel áhugamál inu og gæ l udýr inu. Styrkir til efnilegra ungmenna 2023 Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum vegna úthlutunar styrkja til efnilegra ungmenna sem leggja stund á íþróttir, tómstundir eða listir yfir sumartímann. Öll ungmenni á aldrinum 16–20 ára, (f. 2003, 2004, 2005 og 2006) með lögheimili í Mosfellsbæ, sem skara fram úr og/eða hafa sýnt sérstaka hæfileika á sínu sviði geta sótt um styrkinn. Markmið styrksins er meðal annars að gefa einstaklingum sömu tækifæri og jafnöldrum þeirra til að njóta launa frá bænum á sama tíma og þau stunda list sína, íþrótt eða tómstund yfir sumartímann. Styrkurinn er fólginn í launum frá Mosfellsbæ og greitt í samræmi við önnur sumarstörf hjá Mosfellsbæ. Skilafrestur umsókna er til og með 2. mars 2023. Sótt er um rafrænt á íbúagátt Mosfellsbæjar. Athygli er vakin á að unglingum á aldrinum 13–15 ára (f. 2007, 2008 og 2009) sem taka þátt í til dæmis landsliðsverkefnum og/eða verkefnum fyrir félög/félagasamtök á vinnutíma vinnuskóla verður gefinn sá möguleiki að sækja formlega um leyfi á launum á þeim tíma sem verkefnið varir. Skilyrði er að viðkomandi verði skráður í vinnu í Vinnuskóla Mosfellsbæjar og skili þar lágmarksvinnuframlagi. Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.