Mosfellingur - 09.02.2023, Blaðsíða 33

Mosfellingur - 09.02.2023, Blaðsíða 33
Smiðjuvegi 60 (rauð gata) Kópavogi - Sími 557 2540 Leirvogstunga 27, 270 Mosfellsbæ, sími: 864 6600 Gólfefna lausnir fyrir heimili og fyrirtæki www.bmarkan.is GERÐ AÐALUPPDRÁTTA VERKEFNA– OG BYGGINGASTJÓRNUN HAGKVÆMISATHUGANIR OG ÁÆTLUNAGERÐ UMSJÓN FRAMKVÆMDA ÁSTANDSKOÐUN FASTEIGNA WWW.TOGT.IS togt@togt.is sími8933022 GERÐ AÐALUPPDRÁTTA VERKEFNA– OG BYGGINGASTJÓRNUN HAGKVÆMISATHUGANIR OG ÁÆTLUNAGERÐ UMSJÓN FRAMKVÆMDA ÁSTANDSKOÐUN FASTEIGNA WWW.TOGT.IS togt@togt.is sími8933022 GERÐ AÐALUPPDRÁTTA VERKEFNA– OG BYGGINGASTJÓRNUN HAGKVÆMISATHUGANIR OG ÁÆTLUNAGERÐ UMSJÓN FRAMKVÆMDA ÁSTANDSKOÐUN FASTEIGNA WWW.TOGT.IS togt@togt.is sími 893 3022 Þverholti 3 - Sími: 566-6612 FÓTAAÐGERÐASTOFA MOSFELLSBÆJAR Þjónusta við mosfellinga Aðsendar greinar - 33 Það var ótrúlega vel heppnað að gera þessa spurningu að hálfgerðum brand- ara í auglýsingum frá Virk. Húmor get- ur haft mikil áhrif á daglegt líf okkar í hinum ýmsu aðstæðum, hvernig við eigum samskipti við aðra og hvernig okkur líður í krefjandi umhverfi. En ástæðan fyrir því að ég nefni þetta er að ég var að velta fyrir mér hvað ég ætti að skrifa um í bæjarblaðið okkar að þessu sinni. Hvað er búið að vera í gangi síðustu vikur? Alls konar verkefni í fræðslumálunum og svo eru það úrgangsmálin, atvinnumálin og menningarmálin að ég nefni nú ekki íþrótta- og tómstundamálin. Maður minn hvað þetta er allt mikilvægt og spennandi. Úrgangsmál eru loftslagsmál Nýleg umfjöllun um úrgangsmál hefur líklega vakið athygli margra. Þetta er góð og tímabær umræða. Í allri stefnumótun, áætlunum og góðum fyrirætlunum í loftslagsmálum þá eru úrgangsmál mikilvægur þáttur. Til að setja hlutina í samhengi þá nam kolefn- islosun vegna urðunar Sorpu í Álfsnesi um 2% af heildarlosun Íslands á árinu 2021. Það jafngildir útblæstri frá 45 þúsund bifreiðum. Sem betur fer hefur löggjöfin í þessum málum tekið miklum breytingum og núna um áramótin tóku gildi ný lög sem krefja okkur um miklar breytingar. Þar er meðal annars búið að banna urðun á lífræn- um úrgangi. Það hefur þau áhrif að við þurfum að hefja flokkun á heimilisúrgangi og ég veit að margir Mosfellingar eru löngu tilbúnir í það. Nýjar tunnur eru væntanlegar á hvert heimili með vorinu. Fjárfesting í innviðum er nauðsynleg Það sem við þurfum núna eru raun- hæfar og metnaðarfullar áætlanir um það hvernig úrgangsmálum verður hátt- að á höfuðborgarsvæðinu, og reyndar á landinu öllu, til framtíðar. Þar stendur upp á okkur stjórnmálafólk bæði hjá ríki og sveitarfélögum. Það er orðið bráðnauðsynlegt að ráðast í mikilvæga innviðauppbyggingu til að standa með sóma að þessum málum. Stór skref hafa verið stigin með byggingu á gas- og jarð- gerðarstöð í Álfsnesi (GAJA) og fyrir liggur að hefja útflutning á brennanlegum úrgangi síðar á þessu ári. Stóru verkefnin fram undan eru meðal annars að þroska umræðuna um sorpbrennslu hérlendis og að finna nýjan urðunarstað fyrir höfuðborgarsvæðið. Hefjumst handa Okkur er ekkert að vanbúnaði. Við þurfum að veita þessum málaflokki tíma og athygli og að sjálfsögðu munum við koma að umræðunni um fjármagn. En eins og staðan er núna þá er ekki í boði að gera ekki neitt. Stjórn Sorpu er skipuð kjörnum fulltrúum úr öllum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er metnaðarfullur hópur sem hefur fullan hug á því að leggja sitt af mörkum bæði þegar kemur að mótun stefnu í úrgangsmálum og innleiðingu hringrásarhagkerfisins. Þannig að til að svara spurningunni, jú það er bara brjálað að gera. Aldís Stefánsdóttir Bæjarfulltrúi Framsóknar í Mosfellsbæ og stjórnarkona í Sorpu Er brjálað að gera? Íþróttafélag eins og Afturelding sem er líklega stærsti vinnustaður bæjarins fyrir utan Mosfellsbæ sjálfan er rekið að langmestu leyti af sjálfboðaliðum. Félagið er með tvo starfsmenn á skrifstofunni, framkvæmdastjóra og íþróttafulltrúa sem sjá um allan dag- legan rekstur og faglegt íþróttastarf. Það vantar alltaf góða sjálfboðaliða og það verður að viðurkennast að það verður alltaf erfiðara og erfiðara að fá fólk til starfsins. Það er staðreynd að það er mikil ábyrgð að taka að sér sjálfboðaliðastarf, við viljum allt fyrir íþróttafélagið okkar gera og oftar en ekki erum við komin í þá stöðu að vera að taka á köflum mjög óvinsælar ákvarðanir og stundum spyr ég mig hvers vegna í ósköpunum ég er að þessu. Oftar en ekki fer stór hluti frítímans í að hafa áhyggjur af einhverju ráðinu eða deildinni. En svo koma tímabil sem eru svo gefandi og upp- skeran er svo sæt að það eru þessi augnablik sem gera þetta allt þess virði og oft eftir erfiða fundi þá þarf ekki nema einn sætan sigur og lífið er aftur dásamlegt. Fyrir utan það hvað maður kynnist mikið af frábæru fólki. Nú stöndum við frammi fyrir því að þurfa að manna meistaraflokksráð kvenna í knattspyrnu og það verður fundur á mánudaginn kemur í Vallar- húsinu. Það er ótrúlega mikilvægt fyrir okkur að halda úti góðu starfi í meistaraflokk- unum okkar til þess að yngri iðkendur hafi fyrirmyndirnar til þess að líta til. Ég hvet ykkur sem eruð með stelpur í yngri flokkum að kíkja við af því að tíminn líður hratt og stelpur í 3. og 4. flokki eru steinsnar frá meistaraflokki. Ég lofa ykkur því að þetta er krefjandi, erfitt á köflum en langoftast er þetta bara skemmtilegt og gefandi starf í góðum félagsskap. Áfram Afturelding! Birna Kristín Jónsdóttir Formaður Aftureldingar Sjálfboðaliðinn Umræðuefni Kveiks í síðustu viku var helgað málefni sem hefur verið til umræðu meðal bæjarbúa og í stjórn- sýslunni árum saman, það er urðunar- svæðið á Álfsnesi. Í þættinum kom meðal annars fram að samkvæmt eigendasamkomulagi sem nú er í gildi eigi að loka urðunar- svæðinu í lok þessa árs. Jafnframt kom fram að nýr staður hafi ekki verið fundinn. Þessi fréttaflutningur er ekki nýr og á ekki að koma okkur Mosfellingum á óvart enda hafa fulltrúar Vina Mosfellsbæjar ítrekað bent á þetta undan- farin ár. Fyrir okkur Mosfellinga þurfa eftirfarandi at- riði að vera á hreinu. Álfsnes sem urðunarstaður er ekki að fara neitt. Þetta er eins og þaulsetinn gestur í partýi sem við getum ekki hent út. Þá er tvennt í stöðunni; að pirra sig á honum eða búa þannig um hnútana að viðveran sé þolanleg. Við erum í þeirri stöðu núna. Þegar nýr urðun- arstaður finnst tekur 3-5 ár að undirbúa hann til notkunar. Það að ekki sé búið að finna nýj- an stað þýðir ósköp einfaldlega að ekki verður hægt að hætta urðun á svæðinu í lok þessa árs. Þá þarf að horfa til skynsamari leiða og hvað sé raunhæft að gera. Það er að sætta okkur við nærveru þaulsetna gestsins og gera hana eins bærilega fyrir okkur og hægt er, á meðan unnið er að varanlegri úr- lausn mála. Eitt það brýnasta sem vinna þarf með er lyktarmengunin en það er sjálfsagður réttur okkar Mosfellinga, og ekki síst þeirra sem búa í Leirvogstungu og á öðrum nærliggjandi svæðum, að neikvæð áhrif frá urðunarstaðnum séu í lág- marki. Lyktarmengun kemur úr meðhöndlun á lífrænum úrgangi á urðunarstað og til þess að lykt verði sem minnst þarf að vinna úrganginn innanhúss og sleppa urðun. Fram kom í Kveik að gas- og jarðgerðarstöðin Gaja sé rekin á fullum afköstum og því liggur beinast við að ganga þurfi rösklega í það verk að skapa leiðir til að lífrænn úrgangur sé allur unninn hjá Gaju eða öðrum jarðgerðarstöðvum. Því þurfum við að ganga úr skugga um það að stjórn Sorpu hafi stækkun Gaju á teikniborðinu eða aðrar færar leiðir sem verða klárar fyrir lok árs. Það er forgangsatriði þessa árs. Dagný Kristinsdóttir Oddviti Vina Mosfellsbæjar Vinalegt raunsæi

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.