Mosfellingur - 09.02.2023, Blaðsíða 2
Í þá gömlu góðu...
Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is)
Héðan og þaðan
Þrettándinn 1983
- mosfellspósturinn
MOSFELLINGUR
www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is
Næsti MosfelliNgur keMur út 9. Mars
Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is
Ritstjórn:
Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is
Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is
Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is
Prentun: Landsprent. Upplag: 5.000 eintök. Dreifing: Afturelding.
Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf.
Próförk: Ingibjörg Valsdóttir ISSN 2547-8265
Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is
og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar
skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag.
Mosfellingur kemur út mánaðarlega.
Leikfélag Mosfellssveitar setur nú
upp hið sívinsæla leikrit Dýrin í
Hálsaskógi eftir Thorbjørn Egner þar
sem við kynnumst lífinu í skóginum.
Bráðskemmtilegar
persónur þar á ferð
eins og allir vita og
söngelskar mjög.
Ég er svo heppinn
að vera búinn að
sjá sýninguna en
uppselt er fram
í miðjan apríl
held ég. Það er
óhætt að mæla
með þessari
klassík hjá okk-
ar besta leikfélagi enda ómetanlegt
að eiga svo öflugt áhugaleikhús hér í
bæ. Ég hvet Mosfellinga til að skunda
í Bæjarleikhúsið einhvern góðan
sunnudag með hækkandi sól.
Í blaðinu í dag segjum við frá flottu
íþróttafólki sem Mosfellsbær
heiðraði á dögunum. Þá var líka
valinn sjálfboðaliði ársins í fyrsta
sinn auk þess sem þjálfari og lið
ársins voru verðlaunuð.
Vetrarfrí grunnskólanna er í næstu
viku og búið er að setja saman
fjölbreytta dagskrá fyrir þá sem ekki
verða með tásurnar upp í loft á Tene.
Öll dýrin í skóginum vinir
Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings
www.isfugl.is
6 - Fréttir úr bæjarlífinu2
Í janúarmánuði árið 1983 var sagt frá starfi
Björgunarsveitarinnar Kyndils í Mosfellssveit
og nafnsettar ljósmyndir fylgdu. Enn standa
Kyndilsmenn vaktina og eru tilbúnir að leggja
lið sveitungum sínum og öðrum, sem aðstoð
þurfa við erfiðar aðstæður.
Ragnar Björnsson, einn af þremur í fjarskiptanefnd
Kyndils við stjórnstöðina, Albert Finnbogason,
umdæmisstjóri SVFÍ fylgist með.
Um kvöldmatarleytið á þrettándanum voru Kyndilsmenn í húsakynnum sínum, margir orðnir slæptir og þreyttir eftir erfiða björgunarleiðangra.
Svo ætluðu þeir að selja afganginn af flugeldunum sínum fram eftir kvöldi. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Einar Jónsson kom til að kaupa
flugelda, Halldór Guðmundsson, Magnús Helgason, Albert Finnbogason, Guðjón Haraldsson og Leifur sonur hans, Grétar Hansson, Arnar
Stefánsson, Ingi Már, Daníel Valgeir, Einar M. Einarsson og Ragnar Björnsson.