Mosfellingur - 09.02.2023, Blaðsíða 4
www.lagafellskirkja.is
kirkjustarfið HelgiHald næstu vikna
- Bæjarblaðið í 20 ár4
sunnudagur 12. febrúar
kl. 11: Guðsþjónusta í Lágafellskirkju.
Prestur: sr. Arndís Linn.
kl. 13: Vasaljósa sunnudagaskóli í
safnaðarheimilinu, Þverholti 3.
sunnudagur 19. febrúar
kl. 13: Sunnudagaskóli í safnaðarheimili.
kl. 20: Dylan-messa í Lágafellskirkju.
Prestur: sr. Henning Emil Magnússon.
sunnudagur 26. febrúar
kl. 11: Guðsþjónusta í Mosfellskirkju.
Prestur: sr. Henning Emil Magnússon.
kl. 13: Náttfata og búninga sunnu-
dagaskóli í safnaðarheimilinu.
sunnudagur 5. mars
- æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar
Kl. 13: Fjölskylduguðsþjónusta í Lága-
fellskirkju. Barnakórinn syngur undir
stjórn Valgerðar Jónsdóttur, kórstjóra.
Umsjón: sr. Arndís Linn, Bogi Benedikts-
son æskulýðsfulltrúi og leiðtogar.
Eftir guðsþjónustu verður ,,Vaffla fyrir
steinhús” messukaffi í safnaðarheimil-
inu, Þverholti 3, 3. hæð.
Hægt verður að kaupa vöfflur og
„meððí“ en ágóðinn rennur til styrktar
munaðarlausum börnum í Úganda.
kórahátíð í vídalínskirkju
Kirkjukór Lágafellssóknar syngur í
tónlistarmessu 11. febrúar kl. 16 ásamt
öðrum kórum í Kjalarnesprófastsdæmi.
gaman saman - samverur eldri borgara
Annan hvern fimmtudag kl. 12-14
í safnaðarheimilinu í samstarfi við
FAMOS sem verða hina fimmtudagana
á móti, Eirhömrum.
9. febrúar: Stefán Halldórsson
talar um ættfræðigrúsk.
23. febrúar: Ari Trausti með fyrirlestur-
inn Maðurinn og náttúran.
9. mars: Opið hús.
Eva Dís nýr eigandi
Aristó hárstofu
Eva Dís Björgvinsdóttir er nýr
eigandi Aristó hárstofu sem staðsett
er í Háholti 14. Hún hefur keypt
stofuna af Ingu Lilju Hjálmarsdóttur
og Guðrúnu Sveinsdóttur en þær
stofnuðu stofuna árið 2003. Aristó
verður því 20 ára í nóvember á
þessu ári. „Ég þekki aðeins til Aristó
þar sem ég starfaði þar um tíma,
þannig að þegar þetta tækifæri
bauðst, að kaupa stofuna, sló ég
til. Sömu starfsmenn verða áfram á
stofunni ásamt því að ég bætist við
og vonandi fleiri, það eru alla vega
lausir stólar. Ég mun á næstunni
fríska aðeins upp á stofuna og gera
hana svolítið huggulega. Ég hef
opnað fyrir tímabókanir hjá mér
í gegnum noona appið þannig að
hægt er að bóka tíma í gegnum
netið. Einnig er hægt að hringja í
síma 566-8989.
Mosfellsbær boðar
til opins fundar
Mosfellsbær heldur opinn fund
með íbúum, hagsmunaaðilum og
fulltrúum úr atvinnulífinu. Fund-
urinn verður haldinn í Hlégarði
þriðjudaginn 14. febrúar kl. 17-19.
Fundurinn er hluti af vinnu við
stjórnsýslu- og rekstrarúttekt hjá
Mosfellsbæ sem snýr að þáttum
eins og mati á stafrænum lausnum
í starfsemi Mosfellsbæjar, rekstri
og ráðstöfun fjármuna og mati
á stjórnkerfi og verkaskiptingu.
Úttektin er unnin af ráðgjafafyrir-
tækinu Strategíu sem jafnframt
stýrir vinnu á þessum opna fundi.
Nauðsynlegt er að skrá sig fyrir fram
á fundinn og við skráningu eru
þátttakendur jafnframt beðnir að
skrá sig í umræðuhóp.
Miðvikudaginn 22. febrúar blæs Stórsveit
Íslands til tónleika í Lundi í Mosfellsdal.
Þar munu mosfellskir stórsöngvarar, þau
Sigrún Hjálmtýsdóttir, Sigurður Hansson,
Birgir Haraldsson, Stefanía Svavarsdóttir
og Davíð Ólafsson, syngja með hljómsveit-
inni.
Stórsveit Íslands var upphaflega stofnuð
árið 2009 af félögum í FÍH sem voru at-
vinnutónlistarmenn en flestir voru komn-
ir á aldur og vildu halda áfram að spila
tónlist saman. Einn upphafsmaðurinn að
hugmyndinni að stofna slíkt band var Þór-
ir Þórisson tónlistarmaður og stjórnandi.
Hópurinn kallaði sig Öðlingana og hljóm-
sveitin kallaðist Stórsveit Öðlinga.
Með tímanum urðu mannabreytingar og
nýir stjórnendur tóku við. Daði Þór Einars-
son er núverandi stjórnandi sveitarinnar og
var nafnið Stórsveit Íslands tekið upp árið
2018.
Blanda atvinnu- og áhugamanna
Í hljómsveitinni eru 20 hljóðfæraleikar-
ar, blanda atvinnu- og áhugamanna og er
æft einu sinni í viku. Ýmsir söngvarar hafa
sungið með bandinu í gegnum tíðina og má
þar nefna Hjördísi Geirsdóttur, Pál Óskar,
Ara Jónsson, Davíð Ólafsson og Viggu Ás-
geirsdóttur og Völu Guðnadóttur.
Árið 2019 var ráðist í að útsetja fyrir
sveitina ýmis lög eftir Sigfús Halldórsson
og Oddgeir Kristjánsson. Þá hefur sveitin
einnig staðið fyrir stóru verkefni sem bar
nafnið Keflvíska bítlið frá 1967-1977 og
voru þá 12 lög útsett af því tilefni.
Tónleikarnir þann 22. febrúar hefjast kl.
20:00 og verður hægt að kaupa aðgöngu-
miða við innganginn, 1.500 kr. Tónleikarnir
fara fram í Lundi í Mosfellsdal, höfuðstöðv-
um Lambhaga.
Á efnisskránni eru 20 lög og má þar
nefna: Fyrsti kossinn, Alveg ær, Ég vil að
þú komir, Jarðarfarardagur og Crazy Little
Thing Called Love.
Stórsveit Íslands ásamt mosfellskum söngvurum • Tónleikar 22. febrúar í Mosfellsdal
stórtónleikar haldnir í lundi
stórsveit íslands blæs
til mosfellskrar veislu
Innan skamms munu hefjast framkvæmdir
við gatnagerð fyrir neðan Olís í Mosfellsbæ,
Hamraborg – Langitangi.
Bærinn hefur gengið til samninga við
verktakafyrirtækið Jarðval sf. að loknu opnu
útboðsferli.
Svæðið afmarkast af Bogatanga, Langa-
tanga og Hamratanga en aðkoma að svæð-
inu verður frá Langatanga. Verkið felst í
almennri gatnagerð, uppúrtekt og fyllingu,
lagningu holræsakerfis, vatnslagna, hita-
veitulagna og rafstrengja ásamt uppsetn-
ingu lýsingar. Áætlað er að framkvæmdir
standi yfir fram í júlí 2023.
Blönduð tegund húsa
Á svæðinu verða 5 raðhús, 6 einbýlishús
auk tveggja fjölbýlishúsa.
Nýtt skipulag fyrir byggð að Langatanga
við Hamraborg var samþykkt í apríl 2022.
Íbúðirnar eru af ýmsum gerðum og
blöndun tegunda er mikil. Eitt hús, Hamra-
borg, er nú þegar til staðar og mun standa
áfram.
51 íbúð skipulögð við Hamraborg • Raðhús, einbýlishús og fjölbýlishús í bland
gatnagerð hefst við Hamraborg
horft úr suðaustri
Í næstu viku er vetrarfrí í grunnskólum Mosfellsbæjar. Fjölbreytt
dagskrá verður í boði fyrir börn og fjölskyldur dagana 16.-19.
febrúar. T.d. verður nóg um að vera í sundlaugunum, bókasafn-
inu, íþróttahúsinu, hjá golfklúbbnum og hestamannafélaginu.
Boðið verður upp á sundlaugarkvöld, fimleikafjör, borðtennis-
kennslu, leikhópinn Lottu og fjölskyldugöngu á Úlfarsfell, svo
eitthvað sé nefnt. Nánari upplýsingar á bls. 13 og á Mos.is.
fjölbreytt dagskrá í
vetrarfríi í skólunum
gaman í lágafellslaug