Mosfellingur - 09.02.2023, Blaðsíða 24

Mosfellingur - 09.02.2023, Blaðsíða 24
Mosfellsbær www.mos.is 525 6700 Stækkun Hamra deiliskipulagsbreyting Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt á fundi sínum þann 01.02.2023 að kynna og auglýsa eftirfarand tillögu samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Hamrar hjúkrunarheimili við Langatanga 2A Breytingartillagan gerir ráð fyrir að stækka byggingareit til norðurs og norðausturs, svo hann rúmi nýja viðbyggingu sem núverandi deiliskipulag heimilar. Fyrirhuguð er stækkun og fjölgun hjúkrunarrýma, heimilt verður að byggja allt að þrjár hæðir til samræmis við núverandi skipulag auk kjallara þar sem þörf þykir. Heimild fyrir hjúkrunarrýmum fer úr 40 í 74. Áætlað er að gera viðbyggingu fyrsta áfanga á tveimur hæðum. Mesta hæð húss verður 12 m frá núverandi gólfkóta og miðast hæð við möguleika þriðjuhæðar. Áfram verður aðalaðkoma að hjúkrunarheimilinu frá Langatanga en gert er ráð fyrir nýrri þjónustuaðkomu frá Skeiðholti. Í stað stæða innan lóðar skal taka mið af samnýtingu bílastæða á miðbæjarrsvæðinu, stæði við Skeiðholt og Hlaðhamra. Hugað verður frekar að göngutenginum við svæðið. Horfið er frá kröfu um 3 m háa hljóðvörn á milli Langatanga og bílastæða hjúkrunarheimilis. Markmið breytingar er að bæta ásýnd byggðar og göturýmis. ATH. húskroppur á loftmynd og í skuggavarpi er útfærsla til þess að sýna hugsanlega mestu áhrif nýbyggingar á umhverfið og mun lögun taka breytingum í hönnun húss. Uppdrættir og gögn eru aðgengileg á vef Mosfellsbæjar, mos.is/skipulagsauglysingar, en einnig í Þjónustuveri Mosfellsbæjar, Þverholti 2, svo þau sem þess óska geti kynnt sér breytingar og gert athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skal senda þær til skipulagsnefndar Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ, eða í tölvupósti á skipulag@mos.is. Athugasemdafrestur er frá 9. febrúar til og með 26. mars 2023 Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar Langitangi Ske iðh olt Góður svefn í íslenskum ullarfaðmi eykur vellíðan Íslenskar ullarsængur Fáanlegar á Lopidraumur.is - www.mofellingur.is24

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.