Verzlunartíðindi - 01.02.1990, Blaðsíða 16
Kópvogskaupmenn íjólaönnum
— en Ijóst er þó að verslunin í næst stærsta bæ landsins
geldur að nokkru fyrir sambýlið við Reykjavík
KÓPAVOGUR er ungur bær,
kaupstaður frá því á vordögum
1955. Menn á miðjum aldri
minnast Kópavogs sem hálf-
gerðrar eyðimerkur, þar sem
þrautgóðir menn og konur sett-
ust að og byggðu sinn bæ á
tímum þegar Reykjavíkurborg
gat ekki útvegað byggingalóð-
ir. Þenslan í byggingamálum
var ótrúleg í þessum bæ, svo
mlkil að enn þann dag í dag
líður bærinn fyrir og er haldinn
sannkölluðum vaxtarverkjum.
Bærinn er hinsvegar vinalegur
og hinir dugmiklu íbúar hafa
komið sér vel fyrir. Kaup-
mannastétt bæjarins er orðin
öflug og þar er boðið upp á víð-
tækja verslunarþjónustu sem
mun fleiri en bæjarbúar njóta,
enda er Kópavogur óneitan-
lega vel staðsettur á höfuð-
borgarsvæðinu.
Fyrsta verslun bæjarins mun
hafa verið söluskáli sem Jónas
Bergmann kaupmaður opnaði í
landi Sæbóls við Hafnarfjarð-
16
arveg. Varsúverslun ígömlum
herskáia, en Jónas vakti at-
hygli fólks fyrir góðar glugga-
skreytingar. Þetta mun hafa
verið 1944, en tæpu ári seinna
keypti Guðni Erlendsson rekst-
urinn. Skömmu síðar kom Gísli
Þorkelsson kaupmaður inn í
reksturinn með Guðna og var
við verslunina í ein 2 ár, þegar
búðin var seld Ragnari Jó-
hannessyni, sem setti upp skó-
deild í versluninni. Árið 1950
tók Guðni Þorgeirsson við
rekstrinum, en hann átti eftirað
byggja nútímaiega verslun við
Borgarholtsbraut árið 1960 og
var hann kaupmaður í Kópa-
vogi í 23 ár þar til hann gerðist
starfsmaður Kaupmannasam-
takanna. Við rekstri Verslunar-
innar Fossvogs tók þá Gísli
bróðirhansaðnýju, varþábúið
að byggja nýja verslun handan
Kársnesbrautarinnar og rak
Gísli þar verslun þar til hann
flæmdist á brott vegna vega-
mannvirkis, sem þarna kom
gegnum kaupstaðinn.
Með stórauknum íbúafjölda á
tímum þegar húsmæður voru
heima við daginn langan, varð
mikil þörf fyrir ma tvöruverslanir
og aðra verslunarþjónustu.
Verslanir voru því á tímabili
fjölmargar, einkum í eldri hluta
bæjarins, vesturbænum, trú-
lega ekki færri en tíu á tímabili.
Þetta voru yfirleitt litlar verslan-
ir, en um 1970 voru stofnaðar
verslanir sem þá þóttu stórar
og nútímalegar, Kársneskjör
Guðna Þorgeirssonar og síðar
enn stærri verslun Jóhanns
Kristjánssonar, Borgarbúðin,
auk Kjarakaups við Kársnes-
braut, sem Jóhann byggði og
rak um skeið.
Bæjarfeður Kópavogs boðuðu
á sínum tíma blaðamenn til við-
tals í bænum sínum og kynntu
fyrir þeim miklar hugmyndir um
nýstárlega verslunarmiðstöð í
Hamraborg. Þótti mörgum nóg
um þær miklu hugmyndir, sum-
ir kölluðu það loftkastala. Engu
að síður varð Hamraborg að
veruleika og varð jafnvel stærri
og meiri en áður hafði verið
ráðgert. Þar starfa nú milli 70
og 100 fyrirtæki, þar af fjölmar-
gar verslanir sem selja nánast
allt milli himins og jarðar.
í Hamraborginni má segja að
hafi ríkt mikill stöðugleiki í versl-
un. Þar eru margar verslanir
sem hafa starfað þar frá upp-
hafi og njóta virðingar og
traustra viðskipta. Má þar til
nefna Blómahöllina, Skóbúð
Kópavogs, Vedu, Álfhól og
raunar fleiri. Kaupmönnum ber
þó saman um að Kópavog-
skaupmenn gjaldi fyrir það að
vera í svo nánu sambandi við
Reykjavík, - bærinn er nánast
eins og hvert annað úthverfi
höfuðborgarinnar.
Verzlunartíðindi fylgdust nokk-
uð með jólaösinni í Kópavogi
um nýliðinjól. Verður ekki ann-
að sagt en að Hamraborgin
hafi notið góðra viðskipta um
þessi jól sem fyrr. Þar var líflegt
um að litast flesta daga, og síð-
ustu dagana fyrir jól nánast ör-
tröð í flestum búðunum.
VERSLUNARTÍÐINDI