Bókasafnið - 01.01.2000, Blaðsíða 37
Kristín Ósk Hlynsdóttir, Linda Erlendsdóttir og
Svava H. Friðgeirsdóttir
MA-nám í Bretlandi
Þrjár mismunandi leiðir
Kristín Ósk Hlynsdóttir
Meistaraprófsnám í upplýsingastjórnun við
University of Brighton
\
Við School of Informatíon Management við University of
Brighton er hægt að velja tvær leiðir til meistaraprófs í upplýs-
ingafræðum. Annars vegar er um að ræða nám í upplýsinga-
fræðum (Information Studies) og hins vegar upplýsingastjórn-
un (Information Management), Hið fyrrnefnda er leið fyrir þá
sem hafa Iftinn bakgrunn í upplýsingafræðum en það síðar-
nefnda er fremur ætlað þeim sem hafa tekið B.A.-próf í upp-
lýsingafræðum eða hafa umtalsverða starfsreynslu á þessu
sviði. Báðar leiðirnar eru kenndar í fjarnámi eða „part time".
Hér á eftir verður sagt frá skipulagi náms til meistaraprófs í
upplýsingastjórnun.
Samtals þarf að Ijúka 120 einingum, þar af átta nám-
skeiðum sem gilda 10 einingar hvert og lokaverkefni sem
metið er til 40 eininga, Unnt er að velja sex námskeið af ellefu
mogulegum en auk þess eru tvö skyldunámskeið sem kallast
upplýsingasamfélagið og rannsóknaraðferðir í upplýsinga-
vísindum. Stöðugt er unnið að endurskoðun námskeiða til að
þau fylgi tíðarandanum og þróun í greininni. Að hámarki má
taka fjögur námskeið á skólaári og Ijúka má náminu á allt að
sex árum. Kennt er frá seþtember til og með júní.
Um það bil tveimur til þremur vikum áður en hvert
námskeíð hefst er dagskrá þess og lestrarefni sent út til
nema. Þar á meðal eru Ijósritaðar tímaritsgreinar og skrár yfir
ítarefni, Námið fer síðan þannig fram að kennt er í fimm virka
daga, sjö tfma á dag, frá mánudegi til föstudags. Að því
loknu hefur námsmaður um það bil tíu vikur til að Ijúka
verkefni, ritgerð eða skýrslu sem tengist efni kennsluvikunnar.
Ætlast er til að nemar tengi verkefnavinnu starfsumhverfi sínu á
einn eða annan hátt og nýtast því verkefni oft mjög vel á
vinnustað viðkomandi.
Námskeiðið upplýsingasamfélagið sem áður var nefnt er
inngangsnámskeið þar sem námið, háskólinn og starfslið er
kynnt. Mikið er lagt upp úr að nemar kynnist innbyrðis en í
september á síðastliðnu ári, þegar undirrituð hóf nám við
háskólann, hófu 23 nám. Var það met frá upphafi kennslu til
meistaraprófs í upplýsingastjórnun en umsækjendum fjölgar
ár frá ári og komast færri að en vilja. Síðara skyldunámskeið-
ið, rannsóknaraðferðir, má ekki taka á fyrsta ári enda er
ætlast til að það sé tekið rétt áður en ráðist er í skrif loka-
ritgerðar. Meðal annarra námskeiða sem í boði eru má nefna
markaðssetningu upplýsingaþjónustu, margmiðlun og rafræna
útgáfu, skjala- og upplýsingastjórn og framsetningu upplýsinga.
Upplýsingastjórnunarskor — School of Information
Management við University of Brighton er staðsett í
Moulsecoomb í Brighton, Þar er mjög vel búið tölvuver með
imac- og pc- tölvum en deildin nýtur þar góðs af að heyra
undir tölvunarfræðideild — Faculty of tnformation Technology.
Aldrich bókasafnið f Moulsecoomb er eitt hið stærsta sex
bókasafna við háskólann en 4000 manns heimsækja safnið
á hverjum degi, Safnið var opnað árið 1997 og er aðstaða öll
til fyrirmyndar. Þjónusta safnsins við nema í fjarnámi er mjög
góð. Bókaskráin er á Netinu og þar geta lánþegar endurnýjað
lán og pantað efni. Útibú frá Blackwells bókaversluninni er í
sömu byggingu og bókasafnið.
Skólagjöld fyrir fjarnám í upplýsingastjórnun við University of
Brighton eru nú 245 bresk pund á námskeið eða samtals
2940 bresk pund fyrir námið allt.
Brighton er við suðurströnd Englands, beint suður af
London og tekur um það bil tvær klukkustundir að ferðast
þangað með rútu.
Frekari upþlýsingar fást hjá Nicola Smith, tölvupóstur:
n.l.smith@bton.ac.uk, sími: (44) 1273 643315
University of Brighton, http://www.bton.ac.uk/
MA Information Management
http://www, it, bton .ac, uk/courses/cwp/html/course3. htm
SILVER - upplýsingalind fyrir nema, m.a. bókaskrá
http ://silver. bton .ac. uk/
Almennt um Brighton, http://tourism,brighton,co.uk/
Bókasafnið 24. árg. 2000
35