Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.2002, Page 9

Heima er bezt - 01.03.2002, Page 9
Kirkjustræti 1945,18 ára gamall. Þar var oft mikið fjör. Þá hafði ég spilað á skóladansæfingum í tvö til þrjú ár og öðlast nokkra færni í að leika dansmússík. Auk okkar Björns R. lék þarna bróðir hans Guðmundur á trommur, svo og fleiri. Eg hef leikið með ótal hljómsveit- um. Má þar nefna hljómsveit Karls Jónatanssonar, Jans Moravek og Svavars Gests. Með hljómsveit Guð- mundar Finnbjörnssonar lék ég, svo og með hljómsaveit Þórarins Óskars- sonar. Einnig spilaði ég um tíma á Keflavíkurflugvelli með Ameríkön- um. Oft var ég með hljómsveit sjálf- ur, svo sem á Röðli, Nausti, Hótel Borg og í Súlnasal Hótels Sögu. Þar spilaði ég með mörgum góðum fé- lögum, sem gott er að minnast. Fluttst til Egilsstaða á Héraði Eg fluttist austur að Egilsstöðum með ljölskyldu mína 1976. Atti þá að baki tíu ára hljóðfæra- leik í veitingahúsinu Nausti, frá 1964-1974. Þá stofnaði ég dixieland- hljómsveit, sem lék í eitt og hálft ár á Hótel Sögu. Þá lék ég hálft ár sumar- ið 1976, í Súlnasal Hótels Sögu. Þeg- ar ég var að spila í Naustinu tók ég nrér tak og hóf tónfræðinám. Lauk síðan prófi sem tónmenntakennari 1971, og má ég þá ekki gleyma að nefna mína góðu kennara þar: Ró- bert Abraham Ottósson, Atla Heimi Sveinsson, Þorkel Sigurbjörnsson, Þorgerði fngólfsdóttur og fleiri. Þá hafði ég átt heima alla mína ævi í Reykjavík og var kominn á miðjan aldur. Hljóðfæraleikur var tekinn að minnka. Diskóæðið tók yfir. Til dæmis fór vinnan í Nausti úr sex kvöldum á viku niður í þrjú! Mér bauðst kennarastaða við Tón- skóla Fljótsdalshéraðs og tók hana. A Egilsstöðum kunni ég vel við mig og tók þátt í margs konar félagslífi, því að ég hef gaman af að umgangast fólk. Þar var ég á árshátíðum og þorrablóti, sem haldið er eins og víð- ar. Er þar margt fólk og Ijör mikið. Enn er staðurinn ekki stærri en það að hægt er að halda blót fyrir allan almenning. Virkt leikfélag er á Tómas R. Einarsson og Móeiður Júníusdóttir á djasshátíð Egilsstaða. Á Kanaríeyjum. Arni og Kristín. staðnum, og tók ég nokkurn þátt í því. Ég var í Rotary og vann með frí- múrurum. Tók einnig þátt í félagsvist og bridds. Ég spilaði víða með hljóm- sveitum og með öðrum fyrir austan. Ég var kirkjuorganisti á Völlum í Fljótsdal, í Þigmúla í Skriðdal og á Eskifirði. Þá stjórnaði ég Karlakór Fljótsdalshéraðs. Ég kenndi söng í Heima er hezt 105

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.