Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.2002, Blaðsíða 49

Heima er bezt - 01.03.2002, Blaðsíða 49
ar, varð ég enn meira undrandi, þar fékk ég skýringuna á því furðulega orði sem Ljósbjörg hrópaði upp yfir sig um leið og árstraumurinn hreif hana með sér í dauðann. Það var nafn yðar. Hann beit hörkulega sundur síðustu orðin en hélt svo áfram án þess að gefa mér neitt færi á að svara. - Ykkur hefur tekist bærilega að blekkja og fara á bak við okkur foreldra Ljósbjargar, en slíkt athæfi var ólíkt henni, þessari grandvöru, siðprúðu stúlku, sem alin var upp við stangan aga í öllum kvenlegum dyggðum. Ég fæ ekki ráðið þá dul hvernig hún gat látið ókunnugan útlend- ing tæla sig til þvílíkrar óhæfu sem komin er fram í dgs- ljósið og varpar óneitanlega dökkum skugga á þær björtu minningar sem við foreldrar hennar hefðum viljað eiga um hana óflekkaðar. Hann rétti mér þykkan bréfaböggul, krossbundinn með rauðum silkiborða, ásamt ljósmynd af mér, sem ég sendi innan í jólabréfinu til Ljósbjargar minnar síðastliðinn vetur. - Hirðið þér þetta, sagði hann nístandi köldum rómi og næstum með fyrirlitningu í svip. - Þakka yður fyrir skilvísina, séra Finnbogi, svaraði ég hæversklega og tók tveim höndum við bréfapakkanum og myndinni. - Þessi bréf skulu vel geymd hjá bréfunum sem ég á ffá Ljósbjörgu minni og aldrei verða aðskilin. Myndina og mynd af Ljósbjörgu minni, sem hún gaf mér, læt ég í gylltan ramma, þær verða ekki heldur aðskildar. Séra Finnbogi gekk skrefi nær mér og ætlaði að taka af mér orðið en ég hopaði hvergi og hélt áfram máli mínu. - Eitt vil ég að þér vitið, séra Finnbogi, sagði ég ein- arðlega, að Ljósbjörg heitmey mín og tilvonandi eigin- kona, dó hrein og óflekkuð af mínum völdum og svo heitt unnum við hvort öðru að þér, í öllu yðar föðurlega veldi, hefðuð aldrei getað slitið þau ástar- og tryggðabönd sem tengdu hjörtu okkar tveggja, það gat aðeins dauðinn einn, og Ljósbjörg verður mín að eilífu. Verið þér sælir, séra Finnbogi. Ég hneigði mig hæversklega og gekk keikur fram úr skrifstofu prestsins. Knut frændi og prestsfrúin sátu á tali í gestastofunni og Þórný hafði bæst í hópinn á meðan ég ræddi við sálu- sorgarann. Ég nam staðar fyrir framan prestsfrúna og rétti henni höndina í kveðjuskyni. Hún leit á mig um leið og hún tók í hönd mína og ég las hvorki reiði né ásakanir úr augum hennar, einungis sorg. Næst sneri ég mér að Þórnýju, velgjörðarkonu minni og ætlaði að kveðja, en hún kvaðst fylgja mér til dyra. í sömu andrá snaraðist séra Finnbogi inn í gestastofuna, sneri sér að Knut ffænda, en við Þómý gengum til dyra. Við námum staðar úti á varinhellunni, Þórný brá hönd ofan í vasa sinn og dró upp glóbjartan hárlokk. - Þennan lokk gaf Ljósbjörg mér úr hári sínu fyrir nokkrum árum, sagði hún dapurlega, - en mér var kunn- ugt um hve hún unni þér heitt. Viltu þiggja lokkinn í skilnaðargjöf, Jensen? - Já, svaraði ég af sannfæringarkrafti. - Kærkomnari gjöf hefði enginn getað gefið mér. En áttu þá sjálf engan hárlokk, Þórný, spurði ég. - Nei, ekki hárlokk, en ég á ótal margt annað til minn- ingar um Ljósbjörgu okkar, sem lýsir upp sorgarhúmið, svaraði hún og rétti mér hárlokkinn. Ég tók við honum fagnandi og lagði hann í brjóstvas- ann, þar sem hjarta mitt sló undir. Við heimkomuna til Noregs ætlaði ég að ramma inn hárlokkinn með myndun- um af Ljósbjörgu minni og mér, þar yrði hann tryggilega geymdur. Ég faðmaði Þórnýju og þakkaði henni fyrir þessa dýr- mætu gjöf og allt það sem hún hafði gert fyrir mig á gleði- og sorgarstundum, ókunnugan farandverkamann frá öðru landi, og við kvöddumst með gagnkvæmri vin- áttu og blessunaróskum. En í þann mund sem kveðjum okkar var lokið, barst fótatak að innan. Knut frændi kom í fylgd prestshjónanna út á varinhelluna. Ég hafði kvatt á þessum bæ og skund- aði fram á hlaðvarpann og beið þar á meðan frændi kvaddi góðkunningja sína á prestssetrinu og loks var þetta á enda runnið. Við frændurnir héldum heim á stöð- ina en það var þögul ganga. Nokkrum dögum síðar kvaddi ég ísland, þetta fagra, stórbrotna land, þar sem ég hafði lifað sælustu stundir lífs míns og þyngstu harma. Ég bjóst ekki við því að líta landið framar augum en ásýnd þess yrði sem ofin helg- ustu minningum mínum til hinstu stundar. Rödd sögumannsins hljóðnar, frásögn hans er lokið en nokkur andartök ríkir alger þögn. Asbjörg er djúpt snort- in af þessari harmljúfu örlagasögu, sem henni hefur verið trúað fyrir og varpar nýju ljósi á vissa eðlisþætti í per- sónuleika afa Jensen, sem stundum hafa vakið hjá henni spurningar um alvarlega lífsreynslu og nú hefur hún fengið réttu svörin frá honum sjálfum, þessum heiðurs- manni, sem tengdafaðir hennar er svo sannarlega. Asbjörg rýfur þögnina og segir með hlýrri samkennd í rómi: - Ég þakka þér fyrir þessa áhrifamiklu frásögn, afi Jen- sen, og trúnaðartaustið sem þú sýndir mér. Ég mun lengi geyma sögu þína í minni. Þú hefur svo látið eldri dóttur þína bera nafn íslensku prestsdótturinnar. - Já, annað kom ekki til greina, svarar afi Jensen döpr- um rómi. - Og ég hefði kosið að sjá Ljósbjörgu dóttur mína líkjast nöfnu sinni að einhverju leyti en þar hef ég ekki hitt á óskastundina. - Vissi Solveig eiginkona þín ástæðuna fyrir vali þínu á þessu íslenska nafni, spyr Asbjörg þýðlega. - Já, ég hafði þar ekkert að fela. Solveig varð ekkja ung að árum og að eigin sögn syrgði hún fyrri mann sinn mjög, svo við áttum því að nokkru leyti svipaða reynslu að baki þegar fundum okkar bar fyrst saman. Skömmu eftir fæðingu frumburðar okkar tjáði ég Sol- veigu að þessi dóttir mín skyldi heita Ljósbjörg og ekkert annað, en eignuðumst við fleiri börn mætti hún vera ein- ráð um nöfn þeirra, hve mörg sem þau kynnu að vera, og Heima er bezt 141

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.